

Umræða um þriðja orkupakkann stóð yfir til klukkan 5:42 í morgun. Um hálf fjögur leytið voru sumir orðnir syfjaðir og spurði þá Bergþór Ólason, þingmaður Miðflokksins, forseta Alþingis, Steingrím J. Sigfússon, hvað stæði til að halda þingfundi áfram lengi, þar sem þingmenn þyrftu að mæta á nefndarfundi að morgni.
Óhætt er að segja að svar Steingríms við þessu hafi verið kaldhæðið. Stundin greinir frá þessu. „Nú hefur komið í ljós að háttvirtir þingmenn hafa mikla þörf fyrir að tjá sig. Annríki fer vaxandi á þinginu og ekki mjög margir þingdagar eftir. Og þá er að sjálfsögðu eðlilegt að bregðast við þessari þörf þingmanna með því að lengja þingfund,“ sagði Steingrímur í nótt.
Hann hélt svo áfram og sagði ekki vanbúið að nýta nóttina. „Og ég geri ráð fyrir að háttvirtir þingmenn Miðflokksins sem hafa mikla þörf fyrir að ræða þetta mál, og ræða saman um það og fara í andsvör við sig sjálfa, þeir fagni því að það sé búið til rými fyrir þá til að flytja sínar ræður. Og þar með er þetta allt í góðu lagi og okkur ekki að vanbúnaði að nýta bjarta vornóttina til þess að eiga þessar uppbyggilegu samræður,“ sagði Steingrímur.
Gunnar Dofri Ólafsson, lögfræðingur Viðskiptaráðs Íslands, bendir á á Twitter að líklega séu fáir eins vanir málþófi og einmitt Steingrímur.
Það sem Miðflokksmenn vita ekki er að þeir eru í störukeppni við 36 ár af reynslu af þingstörfum og málþófi, meiri þingreynslu en þeir hafa samanlagt. Forsetinn veit ekkert betra en næturfundi í maímánuði nema kannski neftóbak. pic.twitter.com/MZ5XBBGMj5
— Gunnar Dofri (@gunnardofri) May 21, 2019