fbpx
Miðvikudagur 29.apríl 2026
Fréttir

Undirskriftasöfnun gegn Hatara hafin – „Við samþykkjum ekki gyðingaandúð í okkar landi“

Ágúst Borgþór Sverrisson
Sunnudaginn 19. maí 2019 10:35

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Undirskriftasöfnun er hún hafin á Change.org þar sem þess er krafist að Hatara verði vísað úr keppni frá Eurovision, þ.e. að  Ísland fái ekki að taka þátt í keppninni á næsta ári, vegna þess uppátækis hljómsveitarmeðlima að veifa borðum með litum palestínska fánans við lok keppninnar í gærkvöld.

Opnað var fyrir undirskriftir kl. 7 í morgun og klukkan 10 voru komnar 1.000 undirskriftir. Íslendingar eru í hópi þeirra sem hafa skrifað undir yfirlýsinguna. Yfirlýsingin er svohljóðandi:

Eftir dásamlegt kvöld þar þar sem ágreiningur var lagður til hliðar og allir sameinuðust í tónlistinni þá sýndi hljómsveitin sem keppti fyrir hönd Íslands mikla vanvirðingu gagnvart stemningunni á svæðinu og gestgjafaþjóðinni, með því að halda á lofti fána Palestínu í beinni sjónvarpsútsendingu. Eftir slíka vanvirðingu gagnvart Ísrael þá krefjumst við undirrituð þess að Íslandi verði meinuð þátttaka í keppninni á næsta ári.

Einn sem skrifar undir, Paulo Massana, segir:

„Við samþykkjum ekki gyðingaandúð í okkar landi.“

Klukkan 10:30 voru undirskriftirnar komnar vel á 12. hundraðið.

 

Uppfært kl. 11:30

Undirskriftirnar eru nú rúmlega 1500

Uppfært kl. 12:45

Undirskriftirnar eru nú nokkuð yfir 2.000

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 7 klukkutímum

Gróf upp látna systur sína og gekk með hana þriggja kílómetra leið

Gróf upp látna systur sína og gekk með hana þriggja kílómetra leið
Fréttir
Fyrir 8 klukkutímum

Sláandi þróun meðal íslenskra ungmenna – Ofbeldi, ójafnrétti, persónunjósnir, klám og leynilegir nektarmyndahópar

Sláandi þróun meðal íslenskra ungmenna – Ofbeldi, ójafnrétti, persónunjósnir, klám og leynilegir nektarmyndahópar
Fréttir
Fyrir 11 klukkutímum

Verðbólgan eilítið niður á við

Verðbólgan eilítið niður á við
Fréttir
Fyrir 12 klukkutímum

Reyndur ferðabloggari um Ísland – „Þetta er ódýrasta leiðin til að ferðast um Ísland án þess beinlínis að pína sig“

Reyndur ferðabloggari um Ísland – „Þetta er ódýrasta leiðin til að ferðast um Ísland án þess beinlínis að pína sig“
Fréttir
Í gær

Jón Pétur dregur í land – „Ég tel hvorki jafnrétti, menntun né frelsi kvenna vera vandamál“

Jón Pétur dregur í land – „Ég tel hvorki jafnrétti, menntun né frelsi kvenna vera vandamál“
Fréttir
Í gær

Lára ósátt við bílastæðamálin við Laugaveg 26 – „Svo eru þau að rukka allan sólarhringinn“

Lára ósátt við bílastæðamálin við Laugaveg 26 – „Svo eru þau að rukka allan sólarhringinn“