,,Veiðin hófst á Kárastöðum á Þingvöllum síðastliðinn laugardag og voru Fish Partner félagar ásamt Jeff Currier, heimsþekktum veiði- og listamanni, við veiðar,“ sagði Gunnar Örn Petersen í samtali við Veiðipressuna en þeir stóru eru farnir að taka á Þingvöllum.
,,Mjög góð veiði var á opnunardaginn og stórir fiskar komu á land, m.a. nokkrir yfir 80 cm. Þetta var fyrsti dagur veiðitúrsins hjá Jeff og óhætt að segja að hann hafi byrjað með hvelli,“ sagði Gunnar ennfremur, hress með veiðina og þeir stóru séu farnir að taka.
Biðin er á enda, fiskurinn er farinn að taka og það er það sem allir bíða eftir, margir fóru um helgina og reyndu, sumir fengu eitthvað aðrir ekkert. Svona er þetta bara, ekki er alltaf á vísan að róa í þessum efnum.
Mynd: Jeff með einn rígvænan. Mynd: Bjarni Bjarkarson.