fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
Fókus

Hakkari Áttunnar kemur fram: Ný stefna og nýtt nafn

Guðrún Ósk Guðjónsdóttir
Föstudaginn 1. mars 2019 08:39

Nökkvi Fjalar og hakkarinn.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Áttan er að breyta um stefnu. Nýja stefnan er afþreyingastöð á samfélagsmiðlum og hefur nafninu verið breytt í ÁttanMiðlar. Nökkvi Fjalar greinir frá þessu á Facebook.

„Þessi stefna hefur verið í framtíðarsýninni frá upphafi en við ákváðum í september að undirbúa þetta stóra skref. Eftir gífurlega mikla vinnu (miklu meiri vinnu en viðbjuggumst við) þurftum við að koma upp með plan svo að sem flestir myndu vita að þessari nýju stefnu,“ segir Nökkvi Fjalar.

„Merkið okkar hefur verið á milli tannana á fólki frá fyrsta degi svo við vildum nýta okkur það. Orri Einarsson í gervi hakkara fékk hálfa þjóðina til þess að fylgjast með. Grínið og þessi umdeilda kynning var allt á kostnað efnis sem við höfum unnið hörðum höndum af í gegnum tíðina“

Hér má sjá nýja lógó ÁttanMiðlar.

Það vakti mikla athygli þegar það birtist myndband á öllum samfélagsmiðlum Áttunnar síðastliðinn mánudag. Í myndbandinu var grímuklæddur einstaklingur sem lýsti því yfir að öllum myndböndum Áttunnar hafi verið eytt og voru allir samfélagsmiðlar Áttunnar tómir.

Nú hefur komið í ljós að um kynningu hafi verið að ræða eins og Nökkvi Fjalar greinir frá.

Að lokum segir Nökkvi Fjalar:

„Við höfðum gaman að því að skjóta á það sem við höfum áður gert og erum um leið gífurlega spenntir fyrir nýjum áherslum! Takk fyrir að fylgjast með okkur, tala um okkur og einhverjum tilfellum hata okkur.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

Nær helmingur fólks hefur hugsað um einhvern annan í kynlífi

Nær helmingur fólks hefur hugsað um einhvern annan í kynlífi
Fókus
Fyrir 4 dögum

8 skotheld ráð Ragnhildar til að bæta svefninn – „Því minna sem þú sefur, því fyrr deyrðu“

8 skotheld ráð Ragnhildar til að bæta svefninn – „Því minna sem þú sefur, því fyrr deyrðu“
Fókus
Fyrir 6 dögum

„Á myrkustu stundunum náði sú hugsun í gegn að ég á þrjú börn og ég veit að þau elska mig“

„Á myrkustu stundunum náði sú hugsun í gegn að ég á þrjú börn og ég veit að þau elska mig“
Fókus
Fyrir 6 dögum

Þriðja dóttirin fædd

Þriðja dóttirin fædd
Fókus
Fyrir 1 viku

Yfirgaf eiginmanninn fyrir „draumaprinsinn“ en ekki var allt sem sýndist

Yfirgaf eiginmanninn fyrir „draumaprinsinn“ en ekki var allt sem sýndist
Fókus
Fyrir 1 viku

Mátaði bikiní og fagnaði 61 árs afmælinu sínu

Mátaði bikiní og fagnaði 61 árs afmælinu sínu