fbpx
Þriðjudagur 07.maí 2024
Pressan

Feluleikur í yfirgefinni byggingu endaði á hræðilegan hátt

Ritstjórn Pressunnar
Þriðjudaginn 15. janúar 2019 17:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Tuttugu og eins árs karlmaður fannst látinn í yfirgefinni byggingu í Detroit í Bandaríkjunum aðfaranótt sunnudags.

Maðurinn var ásamt hópi vina í byggingunni þar sem farið var í feluleik. Í leit að góðum felustað ráfaði maðurinn inn í lyftugöng þar sem hann féll niður nokkrar hæðir. Fallið var mjög hátt en maðurinn var á 9. hæð byggingarinnar og er hann talinn hafa látist samstundis.

Eðli málsins samkvæmt áttu vinir hans erfitt með að finna hann og yfirgáfu þeir bygginguna þegar þeir fundu hann ekki. Töldu þeir jafnvel að hann hefði farið heim til sín. Morguninn eftir sneri hópurinn til baka og þá fannst maðurinn látinn.

Margar tómar byggingar eru í Detroit og er ástand margra þeirra hættulegt. Umrædd bygging var eitt sinn vöruhús fyrir matvælafyrirtæki en hefur ekki verið í notkun síðan árið 2002 og því í talsverðri niðurníðslu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Brúðkaupinu slaufað og unnustinn í rusli – Verðandi brúður handtekin fyrir barnaníð

Brúðkaupinu slaufað og unnustinn í rusli – Verðandi brúður handtekin fyrir barnaníð
Pressan
Fyrir 2 dögum

Auka tungl gæti verið á braut um jörðina – Vísindamenn telja sig vita hvaðan það kom

Auka tungl gæti verið á braut um jörðina – Vísindamenn telja sig vita hvaðan það kom
Pressan
Fyrir 2 dögum

Kjúklingur og kókaín

Kjúklingur og kókaín
Pressan
Fyrir 2 dögum

Sakamál: Hvað varð um Allyzibeth? – Var að fara að birta óþægilegar afhjúpanir

Sakamál: Hvað varð um Allyzibeth? – Var að fara að birta óþægilegar afhjúpanir
Pressan
Fyrir 4 dögum

Þrjár konur smitaðar af HIV eftir „Vampírumeðferð“

Þrjár konur smitaðar af HIV eftir „Vampírumeðferð“
Pressan
Fyrir 4 dögum

Sérfræðingur kemur með óvæntar upplýsingar um baðferðir fólks

Sérfræðingur kemur með óvæntar upplýsingar um baðferðir fólks