fbpx
Miðvikudagur 06.maí 2026
Fókus

Camilla Rut: Þetta verður að stöðva – „Greyið barnið þitt að eiga mömmu eins og þig“

Kristjón Kormákur Guðjónsson
Föstudaginn 11. nóvember 2016 15:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Síðustu daga hef ég fengið mjög ljót og andstyggileg skilaboð,“ segir Camilla Rut Arnardóttir. Camilla Rut hefur vakið athygli á snapchatt undir nafninu camyklikk en á bilinu sex til sjö þúsund manns fylgjast þar með því sem hún tekur sér fyrir hendur. Þar leyfir hún fólki að fylgjast með sínu daglega lífi. Undanfarið hefur hún opnað sig um fæðingarþunglyndi og kvíða.

„Ég átta mig á að vera opinber persóna þýðir að fólk hefur ýmsar skoðanir á þér og öllum líkar ekki alltaf vel við þig. Það er víst ekki hægt að gera öllum til geðs,“ sagði Camilla þegar hún opnaði sig fyrst á Facebook. Í samtali við DV segir hún:

„Ég leyfi fólki að fylgjast með mínu lífi. Tala um tísku og heimilið og barnaföt svo dæmi sé nefnt. Svo kviknaði löngun hjá mér til að tjá sig um hluti sem skipta samfélagið máli, opna umræðuna og nýta vettvanginn. Þess vegna hef ég verið að tala um fæðingarþunglyndi og kvíða sem ég er að kljást við og hvernig ég náði að koma mér upp úr þessu. Ég tel þetta mjög góðan vettvang og fæ mikið af skilaboðum frá fólki sem ég hef náð að hjálpa. Það gerir þetta allt þess virði þegar maður heyrir af einhverjum einum sem manni hefur tekist að hjálpa.“

Nauðsynlegt að stöðva eineltið

En ekki eru allir ánægðir með athyglina sem Camilla hefur fengið. Undanfarið hefur henni ömurleg skilaboð sem hún tók afar nærri sér í fyrstu. Hefur henni borist fjöldi skilaboða frá tveimur notendum og þá segir hún aðra hafa lent í einelti af svipuðu tagi. Telur hún nauðsynlegt að stöðva það með öllum ráðum. Skilaboðin eru ömurleg, ljót og andstyggileg líkt og sjá má í skjáskotum.

„Gerir allt svo allir fari að vorkenna þér. Áttu ekki að vera mamma. Greyið barnið þitt að eiga mömmu eins og þig. Af hverju ertu svona athyglissjúk. Ef þú ert svona fáránlega viðkvæm haha og af hverju ertu þá að segja frá öllu sem þú gerir.“

„Það eru fleiri að lenda í þessu og ég er ekki sú eina sem er að fá svona skilaboð,“ segir Camilla Rut. „Þetta virðist vera einhver vinkonuhópur. Ég komst að því hver ein þeirra er og sendi mömmunni skilaboð. Ef enginn talar um þetta, þá heldur þetta bara áfram.“

Camilla segir að hún hafi tekið þetta nærri sér í byrjun:

„Ég er mannleg og þetta sveið og ég tók þetta inn á mig fyrst. En maður á gott fólk í kringum mig sem stappa í mig stálinu og fylgjendurnir líka. Svo verður maður að taka ákvörðun, ef fólkið þekkir þig ekki persónulega þá getur þú ekki tekið þessu persónulega.“

Vill hjálpa öðrum

Þá segir Camilla Rut jafnframt:

„Ég hef þurft að klást við og djöfullegann kvíða sem ég horfist í augu við á hverjum einasta degi því mér finnst þetta mikilvæg umræða sem þarf að opna enn þá meira. Ég vil geta talað um kvíða eins og annað fólk talar um kvefið sitt.“

Camilla Rut bendir á að netníð og neteinelti tíðkist á hverjum einasta degi. Kveðst hún hafa vitað að netníð væri erfitt fyrir þolanda en hefði fyrst áttað sig á hversu sárt það væri nú þegar hún væri að lenda í því sjálf.

„Að hugsa sér að á hverjum einasta degi er fólk að fyrirfara sér vegna eineltis. Ung börn og fullorðið fólk líka!“ segir Camilla Rut og biður fólk að staldra við og hugsa hvað það lætur frá sér á netinu. „Reynum að temja okkur það að segja ekki neitt á netinu sem við getum ekki mögulega sagt ef við stæðum til auglitis við fólk.“

Þá segir Camilla Rut jafnframt:

„Og kæru foreldrar! Svona neteinelti er að tíðkast mest hjá unglingum..Ég bið ykkur, fylgist með því hvað börnin ykkar eru að skrifa á Internetið hvort sem það er Facebook, Instagram, Twitter, Snapchat eða annað!“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 5 dögum

Afhjúpar hvernig hún notaði svamp í kynlífssenu með Emmu Stone

Afhjúpar hvernig hún notaði svamp í kynlífssenu með Emmu Stone
Fókus
Fyrir 6 dögum

Bað stórleikarann eiginmann sinn um tvennt eftir brjóstakrabbameinsgreiningu

Bað stórleikarann eiginmann sinn um tvennt eftir brjóstakrabbameinsgreiningu
Fókus
Fyrir 6 dögum

Selur íbúðina vegna heilsubrests og flytur í Fellabæ – „Það valdeflir og styður að sjá aðrar manneskjur deila sögum sínum“

Selur íbúðina vegna heilsubrests og flytur í Fellabæ – „Það valdeflir og styður að sjá aðrar manneskjur deila sögum sínum“
Fókus
Fyrir 6 dögum

Fagna kristalbrúðkaupi með fallegri fjölskyldumynd

Fagna kristalbrúðkaupi með fallegri fjölskyldumynd
Fókus
Fyrir 1 viku

Leikarinn olli reiði er hann birti færslu á óheppilegum tíma – „Hvað í fjandanum?“

Leikarinn olli reiði er hann birti færslu á óheppilegum tíma – „Hvað í fjandanum?“
Fókus
Fyrir 1 viku

Dóttir Jack Nicholson birtir sjaldséða mynd á 89 ára afmælinu – Svona lítur hann út í dag

Dóttir Jack Nicholson birtir sjaldséða mynd á 89 ára afmælinu – Svona lítur hann út í dag