Dáður matgæðingur og fjölmiðlakona, sem nýlega fann ástina í örmum ungs manns, tilkynnir um að brátt muni þau fjölga mannkyninu. Fréttinni verður vel tekið enda hafa vegir ástarinnar hjá fjölmiðlakonunni verið þyrnum stráðir.
Einn frægasti sjónvarpsmaður Íslands tilkynnir einnig að von sé á erfingja. Sá er kominn á fimmtugsaldurinn og því ekki seinna vænna. Að auki eru flestir vinir hans orðnir ráðsettir fjölskyldumenn og því var aðeins einn kostur í stöðunni.
Eiður Smári Guðjohnsen gengur út en erlend snót heillar kappann upp úr skónum. Í kjölfarið tilkynnir knattspyrnuhetjan að hann hafi tekið við útsendarastarfi hjá bresku liði.
Þekkt sjónvarpskona skilur við maka sinn á árinu. Það veldur miklu uppnámi hjá aðdáendum hennar enda sjónvarpskonan dáð af almenningi og hefur yfir sér ímynd hinnar fullkomnu eiginkonu og móður.
Logi Bergmann Eiðsson tilkynnir um starfslok sín hjá Árvakri og útvarpsstöðinni K100. Síðar á árinu snýr hann aftur á skjáinn í metnaðarfullu verkefni hjá Sjónvarpi Símans.
Þjóðþekktur Íslendingur vekur gríðarlega athygli á árinu þegar viðkomandi stígur fram og segir frá því að hann sé rangfeðraður. „Fleiri stíga fram í kjölfarið og mikil umræða geisar um þetta þjóðfélagsmein sem enginn hefur þorað að ræða fyrr. Sá er hóf umræðuna mun verða hylltur sem hetja í kjölfarið,“ segir völvan.
Ástarlíf Svölu Björgvinsdóttur verður áfram á allra vörum á næsta ári. Fyrst verður greint frá skilnaði hennar en síðan finnur hún aftur ástina síðar á árinu. „Hún mun finna lífsförunaut sinn,“ segir völvan.
Ástamál ráðherra verða í brennidepli en upp kemst um náið samband hans við samherja í pólitík. „Það er ekki gott að segja hvort þar sé um að ræða aðstoðarmann eða annan þingmann. Málið verður allt hið óþægilegasta enda tíðkast sjaldan að fjalla um málefni hjartans, eða öllu heldur lostans, hjá valdamönnum í samfélaginu,“ segir völvan.
Íslenska klámmyndaleikkonan Tinna Gunnarsdóttir, betur þekkt sem Tindra Frost, setur allt á hliðina þegar kynlífsmyndband sem er tekið upp hér á landi er frumsýnt. Um það segir völvan: „Í kjölfarið kemur í ljós að fleiri íslenskir klámmyndaleikarar hafa látið ljós sitt skína á erlendum vettvangi þó að þeir hafi farið huldu höfði hingað til.“
Tvær gríðarlega vinsælar samfélagsmiðlastjörnur opinbera samband sitt á árinu og verður parið í fjölmiðlum í kjölfarið. „Þetta verður nýtt ofurpar og verður umdeilt eftir því.“
Upprisa Björns Braga Arnarssonar hefst á næsta ári. Hann mun nota tímann fjarri sviðsljósinu til þess að verða umfangsmeiri í útgáfu bóka auk þess sem hann mun hefjast handa við framleiðslu á hvers konar skemmtiefni fyrir leiksvið og sjónvarp. „Fórnarlamb Björns Braga fyrirgaf honum og þjóðin mun smátt og smátt taka hann aftur í sátt.“
Tveir ungir karlkyns rapparar stíga fram og opinbera ástarsamband sitt. „Samkynhneigð hefur verið tabú í hinni karllægu íslensku rappsenu og því vekur yfirlýsing rapparanna mikla og jákvæða athygli.“
Vinstrisinnaður áhrifamaður í stjórn- og verkalýðsmálum tilkynnir um hjónaskilnað sinn. Tíðindin verða kunngerð í miðjum kjarabaráttustormi. Í kjölfarið dregur leiðtoginn sig í hlé frá opinberri umræðu í nokkrar vikur.
Annar skilnaður skekur þjóðina en um er að ræða þekkt par á besta aldri úr íslenskri trúarkreðsu. „Í kjölfarið fara þau að atyrða hvort annað í fjölmiðlum. Þetta verður frekar blóðugt,“ segir völvan.