fbpx
Miðvikudagur 06.maí 2026
Fókus

Íslendingar taka þátt í nýjasta æðinu á samfélagsmiðlum: Sjáðu myndböndin

Mun „gínuáskorunin“ ná sömu vinsældum og ísfötuáskorunin?

Auður Ösp
Föstudaginn 11. nóvember 2016 18:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Undanfarna daga hefur færst í aukana að einstaklingar birti rúmlega mínútulöng myndskeið af sjálfum sér á samfélagsmiðlum þar sem viðkomandi gerir ekkert annað en að standa grafkyrr. Hér er á ferð Gínuáskorunin svokalla eða „The The Mannequin Challenge“ en á meðal þekktra stjarna sem tekið hafa áskoruninni eru Adele, Hillary Clinton, Paul McCartney, Ellen DeGeneres og Beyoncé. Time tók á dögunum saman 17 athyglisverð myndskeið sem gerð hafa verið í tengslum við áskorunina.

Ófáir Íslendingar muna eftir ísfötuáskoruninni svokölluðu eða „The Ice Bucket Challenge“ sem tröllreið netinu fyrir nokkrum misserum og gekk út á að einstaklingar léttu hella yfir ísköldu vatni og skoruðu síðan á vini sína að gera slíkt hiða sama. Víst er þó að gínuáskorunin býður upp á talsvert meira svigrúm fyrir skapandi hugsun auk þess sem herferðin gengur ekki út á keppni eða, þá fjáröflun, ólíkt ísfötuáskoruninni.

Fyrrum forsetaframbjóðandinn Hillary Clinton birti gínuáskorunarmyndskeið  á Twitter um leið og hún hvatti fólk til að kjósa í forsetakosningunum í Bandaríkjunum. Ljósmynd/Twitter.
Fyrrum forsetaframbjóðandinn Hillary Clinton birti gínuáskorunarmyndskeið á Twitter um leið og hún hvatti fólk til að kjósa í forsetakosningunum í Bandaríkjunum. Ljósmynd/Twitter.

Hópur unglinga í menntaskóla í Bandaríkjunum komu gínuherferðinni á stað í síðasta mánuði en sem fyrr segir ganga myndskeiðin út á það að viðkomandi stendur grafkyrr, eins og gína, og í flestum tilfellum hljómar lagið „Black Beatles“ með Rae Sremmurd í bakgrunni. Mismunandi er þó í hvaða stellingum hver og einn er á meðan á myndskeiðinu stendur.Líkja má upplifuninni við að horfa á myndskeiðin við það að horfa á mynd þar sem skyndilega hefur verið ýtt á pásu.

[youtube https://www.youtube.com/watch?v=Zzf8smCKPM4&w=600&h=360]

Starfsmenn Nýherja ákváðu að taka gínuáskoruninni í morgun og þá hafa fyrirtækin Aðalskoðun og Vodafone einnig slegist í hópinn með þeim. Meðfylgjandi er stórskemmtileg gínuáskorun fyritækjanna, sem jafnframt hafa skorað á WOW air, Krispy Kreme, Símann, Icelandair, Íslenska, Ölgerðina, Eldsmiðjuna og Landsbankinn að taka þátt og verður spennandi að sjá hvort fleiri fyrirtæki muni slást í hópinn.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 5 dögum

Afhjúpar hvernig hún notaði svamp í kynlífssenu með Emmu Stone

Afhjúpar hvernig hún notaði svamp í kynlífssenu með Emmu Stone
Fókus
Fyrir 6 dögum

Bað stórleikarann eiginmann sinn um tvennt eftir brjóstakrabbameinsgreiningu

Bað stórleikarann eiginmann sinn um tvennt eftir brjóstakrabbameinsgreiningu
Fókus
Fyrir 6 dögum

Selur íbúðina vegna heilsubrests og flytur í Fellabæ – „Það valdeflir og styður að sjá aðrar manneskjur deila sögum sínum“

Selur íbúðina vegna heilsubrests og flytur í Fellabæ – „Það valdeflir og styður að sjá aðrar manneskjur deila sögum sínum“
Fókus
Fyrir 6 dögum

Fagna kristalbrúðkaupi með fallegri fjölskyldumynd

Fagna kristalbrúðkaupi með fallegri fjölskyldumynd
Fókus
Fyrir 1 viku

Leikarinn olli reiði er hann birti færslu á óheppilegum tíma – „Hvað í fjandanum?“

Leikarinn olli reiði er hann birti færslu á óheppilegum tíma – „Hvað í fjandanum?“
Fókus
Fyrir 1 viku

Dóttir Jack Nicholson birtir sjaldséða mynd á 89 ára afmælinu – Svona lítur hann út í dag

Dóttir Jack Nicholson birtir sjaldséða mynd á 89 ára afmælinu – Svona lítur hann út í dag