
Ljósmyndararnir Mert og Marcus er þekktir fyrir glæsimyndir sínar af frægum konum, þar á meðal Madonnu, Kate Moss og Naomi Campbell. Mert er frá Tyrklandi og Marcus frá Wales og hafa þeir auðgast gríðarlega af vinnu sinni.
Þeir hafa starfað saman í tuttugu ár og halda nú fyrstu ljósmyndasýningu sína. Í tilefni þess voru þeir í viðtali í Sunday Times og ræddu um ferilinn og vináttu sína við þær konur sem þeir hafa myndað.
„Guð minn góður, ég drap Björk!“
„Ég komst nálægt því að drepa Björk,“ segir Marcus þegar blaðamaður spurði hann hvort eitthvað slæmt hefði gerst á tökustað.
Þeir félagar voru að mynda Björk í vatni og Marcus fór að laga ljósastand sem féll í vatnið og sprakk. Marcus segir að fyrsta hugsun sín hafi verið: „Guð minn góður, ég drap Björk!“
Hann segir að það hafi verið mikill léttir að sjá hana í miðju vatninu sprelllifandi.
Spurðir af hverjum þeir vildu helst taka myndir af sögðu þeir það vera Elísabetu Englandsdrottningu.