Rekstrarstjóri Útilífs ekki ánægður með verðmuninn – Hægt að gera frábær kaup á tilteknum lit í Noregi
Vinsælir Nike hlaupaskór kosta á bilinu 25-41 prósent meira í Útilíf en í sportvöruverslunum í Noregi, Danmörku og Bretlandi. Þetta leiðir verðsamanburður DV í ljós en blaðið kannaði verð í 20 íslenskum verslunum og bar saman við verð í sambærilegum verslunum í löndunum þremur. Niðurstöðurnar eru sumpart sláandi. Meðaltals verðmunur reyndist heilt á litið á á bilinu 60-80 prósent.
Í DV á þriðjudag var borið saman verð á Nike Mercurial Superfly V AG-Pro takkaskóm í Útilífi við verð í nágrannalöndunum. Verðmunurinn reyndist í tilviki þeirrar vöru á bilinu 23-62%. Útilíf gerði athugasemd við samanburðinn og benti á að skórinn er víðast hvar að seljast upp og er því á lækkuðu verði í sumum samanburðarlöndunum, en DV lagði upp með að taka ekki mið af útsöluverði. DV fellst á athugasemd Útilífs og birtir því í staðinn verðsamanburð á NIKE AIR ZOOM PEGASUS 33 hlaupaskóm fyrir dömur. Þar er verðmunurinn á bilinu 25-41%. DV komst að því að í Noregi er blár hlaupaskór (sem ekki fæst í Útilíf) verðlagður á um 8.000 krónur, en hann er ekki dæmigerður fyrir verðið. Yfirleitt kostar skórinn 14-16 þúsund krónur í hinum löndum þremur en í Útilíf kostar hann 20 þúsund.
Hörður Magnússon, rekstrarstjóri Útilífs, segir að hann sé ekki ánægður með að verðmunurinn sé þetta mikill. Mikil áhersla hafi verið lögð á að lækka verð að undanförnu, samhliða styrkingu gengis krónunnar. Þannig verði hægt að bjóða um 7% hægstæðara verð á næsta verðlista. „Þegar við verðleggjum næst þá munum við lækka meira.“
Hörður segir að það sé alls ekki hagur íslenskrar verslunar að neytendur leiti í auknum mæli út fyrir landsteinana þegar kemur að innkaupum. Þess vegna leggi Útilíf mikla áherslu á að fylgjast vel með.
Þess má geta að blái skórinn, sem er svona ódýr í Noregi, fæst ekki í Útlíf. Hér til hliðar er mynd af þeim litum sem fást í Útilíf Smáralind.
Hörður segir að til standi að minnka muninn á milli Íslands og nágrannalandanna meira. Það muni Útilíf kappkosta.
Sjá einnig: Okrað á Íslendingum
Sjá einnig: Verðsamanburður: Tvöfaldur verðmunur á leikföngum
Sjá einnig: Sláandi verðmunur á sjónvarpstækjum hér og í nágrannalöndunum
Sjá einnig: IKEA reyndist með um 30% hærra verð en nágrannalöndin