

Kórdrengir ætla sér stóra hluti í 3.deild karla næsta sumar og hefur samið við nokkra öfluga leikmenn.
Kórdrengir hafa náð að sannfæra marga öfluga leikmenn síðustu ár og má nefna þá Farid Zato, Ingvar Kale og Viktor Unnar Illugason.
Einar Orri Einarsson er á meðal þeirra sem hafa gert samning við Kórdrengi en hann kemur til félagsins frá Keflavík.
Einar Orri hefur allan sinn feril leikið með Keflavík og var partur af liðinu í sumar sem féll úr Pepsi-deildinni.
Einnig fékk félagið til sín Magnús Þórir Matthíasson. Magnús á að baki fjölmarga leiki í Pepsi-deildinni en lék síðast með Reyni Sandgerði.
Tilkynning Kórdrengja:
Nýir leikmenn sem hafa gengið til liðs við okkur eru eftirfarandi:
—
—
Einar Orri hefur leikið allan feril sinn með Keflavík. Hann lék sinn fyrsta meistaraflokksleik með Suðurnesjaliðinu árið 2005 og hefur spilað alls 180 leiki með því og skorað 10 mörk. Einari Orra stóðu mörg tilboð til boða en ákvað að ganga til liðs við Kórdrengi í krefjandi en spennandi verkefni að koma sér uppúr 3. deildinni.
—
—
Magnús Þórir Matthíasson hefur spilað flesta sína leiki, 187 talsins, fyrir Keflavík með stuttu stoppi í Víði og Fylki og nú siðast Reynir Sandgerði. Magnús var algjör hvalreki fyrir Reyni í fyrra og kom að helming marka þeirra síðasta sumar, skoraði 22 mörk og lagði upp 11. Frábær styrkur sem mun nýtast Kórdrengjum virkilega vel.
—
—
Alexander Magnússon hefur ákveðið að spila áfram með Kórdrengjum eftir stórkostlegt ár í fyrra. Alexander hefur spilað með Grindavík, Njarðvík og Keflavík, 120 Meistaraflokks leiki samtals. Virkilega góður styrkur fyrir okkur að halda þessum frábæra leikmanni.
—
—
Eyþór Helgi Birgisson er kominn aftur heim. Frábær drengur í alla staði og gífurleg styrking fyrir liðið. Fjölhæfur leikmaður sem getur spilað flestar stöður á vellinum. Eyþór Helgi hefur spilað fyrir ÍBV, HK og Víking Ólafsvík, 150 Meistaraflokks leiki samtals.
—
—
Kórdrengir eru gífurlega ánægðir með komu þessara drengja, sem eru mikil styrking inn í liðið. Okkur hlakkar til að takast á við komandi verkefni.