Samkvæmt frétt á Eyjunni frá árinu 2013 var brotist inn í Sædýrasafnið fyrir lokun þess árið 1987. Þar var að verki undirheimalýður í leit að fjármunum en lítið fannst af þeim. Þá tóku þeir eina kengúruna og fóru með hana á skemmtanalífið í miðborg Reykjavíkur. Samkvæmt heimildarmanni var farið með hana í partí á Laugaveginum og þótti fólki þetta sniðugt. Daginn eftir vöknuðu þjófarnir með djammviskubit og ákváðu að skila kengúrunni aftur. Þjófarnir þorðu þó ekki að mæta starfsfólki Sædýrasafnsins heldur skildu hana eftir í kassa undir göngubrú í Árbæ þar sem hún var sótt.