fbpx
Þriðjudagur 01.júlí 2025
Fókus

Fagnaðarkantata á fullveldisafmæli

Ragna Gestsdóttir
Miðvikudaginn 7. nóvember 2018 15:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Verkið er ljóðræn útfærsla á þeim breytingum sem verða hjá þjóðinni frá því hún byrjar að líta hugdjarfari en fyrr til framtíðar og losa af sér hlekki og „klakabönd“ fortíðar“

Þann 1. desember verður flutt glæný fagnaðarkantata „Út úr kofunum“ í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri þar sem kynslóðir og tónlistarstefnur mætast og fagna saman fullveldinu með norðlenskum ofurkröftum.

Höfundur verksins er Michael Jón Clarke en flytjendur eru Stefán Jakobsson, Þórhildur Örvarsdóttir, Gísli Rúnar Viðarsson, Hymnodia, Eyþór Ingi Jónsson, Sinfóníuhljómsveit Norðurlands, ungmennakórinn Æskuraddir fullveldisins, Sigrún Magna Þórsteinsdóttir og ungir strengjaleikarar í Strengjasveit fullveldisins. Höfundur texta er Sigurður Ingólfsson.

„Verkið er ljóðræn útfærsla á þeim breytingum sem verða hjá þjóðinni frá því hún byrjar að líta hugdjarfari en fyrr til framtíðar og losa af sér hlekki og „klakabönd“ fortíðar,“ segir Michael Jón Clarke. Þar sé rakin, án þess að um beina sagnfræði sé að ræða, vegferð og hugarfarsbreytingar á tiltölulega stuttu en gríðarlega mikilvægu og kraftmiklu tímabili í lífi þjóðar, frá fullveldis til lýðveldis.

„Í tilefni 100 ára afmælis fullveldisins horfum við um öxl og könnum hvaðan við erum komin, hvers konar samfélag það var sem í upphafi síðustu aldar ól af sér þetta fullvalda ríki Ísland,“ segir Kolbrún Halldórsdóttir, verkefnisstjóri fullveldishátíðar, og bætir við að á sjálfan afmælidaginn sé gott að finna fyrir sögunni. „Og vita að hún er okkur aðgengileg, við höfum hana meðferðis í bakpokunum þegar við beinum sjónum okkar mót framtíðinni, til næstu 100 ára. Á slíkum tímamótum fyllumst við bjartsýni og heitum sjálfum okkur því að vinna fullveldinu gagn með gjörðum okkar, svo það fái dafnað komandi kynslóðum til heilla,“ segir Kolbrún.

Verkið, sem hlaut meðal annars styrk frá Afmælisnefnd fullveldis Íslands, verður flutt laugardaginn 1. desember klukkan 20.00 í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri. Miðasala er í fullum gangi á www.mak.is

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Duran aftur til Evrópu
Fókus
Fyrir 2 dögum

Sigga segist geta kveikt á ónýtri ljósaperu með því að leggja hana á ennið

Sigga segist geta kveikt á ónýtri ljósaperu með því að leggja hana á ennið
Fókus
Fyrir 2 dögum

Lilja Sif Pétursdóttir krýnd Miss Supranational Europe og Miss Photogenic 2025

Lilja Sif Pétursdóttir krýnd Miss Supranational Europe og Miss Photogenic 2025
Fókus
Fyrir 3 dögum

Móðir léttist um 38 kíló en vill vara aðra við – Svona borðar hún í dag

Móðir léttist um 38 kíló en vill vara aðra við – Svona borðar hún í dag
Fókus
Fyrir 4 dögum

Myndirnar sem Katy Perry vill ekki sjá: Orlando Bloom með dökkhærðri þokkadís

Myndirnar sem Katy Perry vill ekki sjá: Orlando Bloom með dökkhærðri þokkadís
Fókus
Fyrir 5 dögum

Ragnhildur gagnrýnir „ofurfyrirsætusnarlið“ sem fer sem eldur um sinu á samfélagsmiðlum

Ragnhildur gagnrýnir „ofurfyrirsætusnarlið“ sem fer sem eldur um sinu á samfélagsmiðlum
Fókus
Fyrir 5 dögum

Móðir eyðilagði óléttutilkynningu í einstaklega vandræðalegu myndbandi

Móðir eyðilagði óléttutilkynningu í einstaklega vandræðalegu myndbandi
Fókus
Fyrir 5 dögum

Ellý Ármanns svarar spurningunni: Verður gott veður á Þjóðhátíð í Eyjum í ár?

Ellý Ármanns svarar spurningunni: Verður gott veður á Þjóðhátíð í Eyjum í ár?
Fókus
Fyrir 5 dögum

Ísak um atvik í IKEA: „Það tók mig svona 40 sekúndur að ná tökum á aðstæðum eftir að ósköpin dundu yfir“

Ísak um atvik í IKEA: „Það tók mig svona 40 sekúndur að ná tökum á aðstæðum eftir að ósköpin dundu yfir“