fbpx
Sunnudagur 08.júní 2025
Pressan

Hugsanleg tengsl á milli neyslu glútens á meðgöngu og sykursýki barna

Kristján Kristjánsson
Fimmtudaginn 20. september 2018 18:30

Mynd úr safni. Mynd:Wikimedia Commons

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Danskir vísindamenn hafa sýnt fram á að mikil glútenneysla á meðgöngu getur aukið líkurnar á að barnið fái sykursýki 1. Þetta er í fyrsta sinn sem sýnt er fram á tengls á milli neyslu glútens og sykursýki.

Politiken skýrir frá þessu í dag. Niðurstöður rannsóknarinnar eru jafnframt birtar í hinu viðurkennda vísindariti British Medical Journal í dag.

Politiken hefur eftir Julie Antvorskov, sem stýrði rannsókninni, að niðurstaðan sé mjög skýr og tölfræðilega marktæk. Þeim mun meira glútens sem móðir neytir á meðgöngu, þeim mun meiri eru líkurnar á að barn hennar fái sykursýki 1 síðar á ævinni.

Niðurstaða rannsóknarinnar sýnir að konur, sem borða mikið glúten á meðgöngu, eiga tvöfalt fleiri börn með sykursýki 1 en þær sem borða lítið glúten.

Það voru vísindamenn hjá Statens Serum Institut, rannsóknarstofnun ríkisins, sem gerðu rannsóknina. Þeir rannsökuðu 67.565 meðgöngur hjá 63.529 konum og fylgdust með börnunum í 15 ár. 247 börn höfðu þá greinst með sykursýki 1 eða 0,52 prósent af heildarfjöldanum. Til samanburðar kom í ljós að hjá mæðrum, sem borðuðu lítið glúten, fengu 0,3 prósent barnanna sykursýki 1.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 19 klukkutímum

Trump sagður þurfa að velja á milli tveggja slæmra valkosta – Nýfastistar heimta bætur eftir náðun frá forseta

Trump sagður þurfa að velja á milli tveggja slæmra valkosta – Nýfastistar heimta bætur eftir náðun frá forseta
Pressan
Fyrir 21 klukkutímum

Þessu áttu ekki að henda þegar þú tekur til í svefnherbergjum

Þessu áttu ekki að henda þegar þú tekur til í svefnherbergjum
Pressan
Fyrir 2 dögum

Landið sem gerði reykingar kynþokkafullar er nú að segja skilið við sígarettur

Landið sem gerði reykingar kynþokkafullar er nú að segja skilið við sígarettur
Pressan
Fyrir 2 dögum

Skotin ganga á víxl í ævintýralegum deilum – „Tími til að varpa stóru sprengjunni. Donald Trump er í Epstein-skjölunum“

Skotin ganga á víxl í ævintýralegum deilum – „Tími til að varpa stóru sprengjunni. Donald Trump er í Epstein-skjölunum“
Pressan
Fyrir 2 dögum

Umfangsmikil leit að föður sem grunaður er um að hafa myrt þrjár dætur sínar

Umfangsmikil leit að föður sem grunaður er um að hafa myrt þrjár dætur sínar
Pressan
Fyrir 2 dögum

Var mörg ár á dauðadeild en lést svo í eldsvoða á þriðjudag

Var mörg ár á dauðadeild en lést svo í eldsvoða á þriðjudag