fbpx
Fimmtudagur 13.nóvember 2025
Fókus

Fjölskyldan klofin: „Hefur hann sett mikinn þrýsting á móður okkar, sem er að fara yfir um“

Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 27. september 2016 17:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Brynjar Níelsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segir alvarlegan klofning vera kominn upp í sinni fjölskyldu. Bróðir hans, Gústaf Níelsson, fari fram fyrir Þjóðfylkinguna í Reykjavík í alþingiskosningunum, sem hafi sett mikinn þrýsting á móður þeirra.

Hún sé því að fara yfir um eins og „móðirin í jólalaginu, þegar jólasveinninn var að hefna sín á Skrámi“. „Svo eru menn að tala um klofning í Framsókn,“ segir Brynjar á Facebook-síðu sinni. Hafa miklar og fjörugar umræður skapast á á síðu Brynjars sem segir einnig um Gústaf bróður sinn og þennan klofning innan fjölskyldunnar.

„Flestir eru á því að pabbi hafi fundið hann á ruslahaugum í sígaunahverfi á suður á Ítalíu […] Ekki ólíklegt að hann hafi flotið yfir miðjarðahafið og endað á Ítalíu. Svipurinn bendir til þess.“

Facebook-vinur Brynjars, Halldór Fannar Sigurgeirsson stingur upp á lausn og segir: „Það er spurning hvort annar ykkar geti endurskilgreint sig svo hún geti beitt kynjakvótahugsjóninni.“ Brynjar svarar þá: „Hann er nú miklu meiri keeelling en ég, Halldór og það er soldið trans í honum.“

Sumir taka léttu gríni þingmannssins alvarlega og vilja verja Gústaf sem lét svo loks sjá sig í þræðinum og tók af allan vafa um að bróðurlega stríðni væri að ræða. Þegar Brynjar varð var við bróður sinn kvaðst hann ekki hafa gert ráð fyrir að hann væri í netsambandi fyrir austan.

„Var að fá netið rétt áðan góði minn,“ sagði þá Gústaf og bætir við á öðrum stað: „Brynjar er bara spældur. Nú mun Mamma og Gulli bróðir kjósa mig, en Vallý systir situr uppi með Binna í RS.“

Hér fyrir neðan má svo lesa þessar fjörugu umræður í heild sinni.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Brjáluð breyting á klámdrottningunni – Sjáðu myndbandið

Brjáluð breyting á klámdrottningunni – Sjáðu myndbandið
Fókus
Í gær

Grátbað um að leika ekki í þessu atriði í One Tree Hill

Grátbað um að leika ekki í þessu atriði í One Tree Hill
Fókus
Fyrir 2 dögum

Allt breyttist hjá Dagbjörtu þann 2. desember – „Líf mitt hefur aldrei verið eins“

Allt breyttist hjá Dagbjörtu þann 2. desember – „Líf mitt hefur aldrei verið eins“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Svona hafði hún efni á „dýra“ Íslandi

Svona hafði hún efni á „dýra“ Íslandi
Fókus
Fyrir 3 dögum

8 hlutir sem Sara hefði viljað vita áður en hún hóf heilsuvegferð sína – „Trúðu mér, ef ég gat þetta þá getur þú það líka“

8 hlutir sem Sara hefði viljað vita áður en hún hóf heilsuvegferð sína – „Trúðu mér, ef ég gat þetta þá getur þú það líka“
Fókus
Fyrir 3 dögum

O heldur áfram að raka inn verðlaunum

O heldur áfram að raka inn verðlaunum
Fókus
Fyrir 4 dögum

Eitt dularfyllsta sakamál síðari ára – Hvað gerðist í lyftunni?

Eitt dularfyllsta sakamál síðari ára – Hvað gerðist í lyftunni?
Fókus
Fyrir 4 dögum

Matvörurnar sem eru hættar í framleiðslu en Íslendingar sakna

Matvörurnar sem eru hættar í framleiðslu en Íslendingar sakna