

Davy Klaassen hefur skrifað undir samning við lið Werder Bremen í þýsku Bundesligunni.
Þetta var staðfest í dag en Klaassen kemur til Bremen frá Everton þar sem hann var í aðeins eitt tímabil.
Klaassen kostaði Everton 23 milljónir punda í fyrra en hann kom til félagsins frá Ajax þar sem hann var fyrirliði.
Hollendingurinn spilaði þó aðeins 16 leiki fyrir Everton á síðustu leiktíð og átti enga framtíð undir stjórn Marco Silva.
Bremen borgar 13 milljónir punda fyrir Klaassen sem er 25 ára gamall miðjumaður.