Sjónarvottar lýstu fyrsta atburðinum sem svo að þeir hefðu sé V-laga hlut, á stærð við farþegaflugvél, fljúga í gegnum ský. Einn sjónarvotturinn lýsti þessu sem bjúgverpilslaga hlut sem hefði svifið yfir Granite Mountain oghafi hluturinn verið rúmlega kílómetri á breidd. Hann fullyrti að útilokað væri að hluturinn væri héðan frá jörðinni.
„Það eru ekki svona stórir hlutir hér. Hann var algjörlega hljóðlaus. Ég hef aldrei séð neitt sem líkist litunum sem komu úr útblásturskerfi hlutarins. Þetta var jafnstórt og miðbær Prescott og skyggði algjörlega á stjörnurnar.“
Næsta atburði lýsti lögreglumaður sem svo að hér hefði verið um mörg kyrrstæð, appelsínugul og rauð ljós sem svifu í loftinu.
Ríkisstjóri Arizona, Fife Symington, tók þessu létt í upphafi og taldi þetta varla svaravert og lét aðstoðarmann sinn fjalla um málið á fréttamannafundi og gera lítið úr því. Hann kúventi þó skoðun sinni síðar og sagðist sjálfur hafa séð ljósin og væri þess fullviss að þau væru ekki af mannavöldum, hér hlyti að vera um geimverur að ræða.
Lítið er til af myndefni af fyrsta atburðinum í Prescott og Dewey að því að vitað er. Meira er hins vegar til af myndum, bæði ljósmyndum og myndbandsupptökum, af næsta atburði þegar appelsínugulu og rauðu ljósin sáust. Töluvert af þessu myndefni hefu verið sýnt í heimildarmyndum á sjónvarpsstöðvum eins og Discovery og History Channel. Á flestum þessar mynda sjást ljós birtast eitt af öðru og síðan slökkna eitt af öðru.
Leikarinn góðkunni Kurt Russell er einn þeirra sem sáu ljósin. Í samtali við BBC fyrir nokkrum árum sagði hann að hann hefði verið að fljúga með son yfir Arizona þetta kvöld. Þegar hann hafi verið í aðflugi að flugvellinum hafi hann séð sex ljós yfir honum og hafi þau verið á hlut sem var V-laga. Hann sagðist hafa tilkynnt þetta til flugumferðarstjórnar en flugumferðarstjóri hafi sagt honum að hluturinn sæist ekki á ratsjá.
Síðar kom sú skýring fram á appelsínugulu og rauðu ljósunum að þar hefði verið um blys að ræða sem hefði verið kastað úr herflugvél á æfingu við Barry Goldwater Range. En engin skýring hefur komið fram um hvað V-laga hluturinn gæti hafa verið.
Ljósagangurinn í Phoenix hefur heillað milljónir manna á þeim rúmlega 20 árum sem eru liðin síðan þeirra varð vart. Ljósagangurinn var meðal annars grunnurinn að kvikmyndinni Phoenix Forgotten. Þá hafa margar bækur og heimildarmyndir verið gerðar um þetta. Ekki má gleyma samsæriskenningasmiðum sem hafa getað velt sér upp úr þessum atburði og hafa sett fram ýmsar skýringar nú eða kenningar um að hér hafi verið um samsæri stjórnvalda að ræða. Aðrir eru þess fullvissir að hér hafi gestir utan úr geimnum verið á ferð. Það sem gerir þetta mál þó mun sérstakara en mörg önnur svipuð er fjöldi sjónarvotta en þeir voru í þúsundatali. Hvað varðar V-laga hlutinn hefur þeirri skýringu verið varpað fram að hér hafi verið um flugvélar að ræða. Hér hafi augu fólks blekkt það og margar flugvélar runnið saman í einn hlut á himninum. Hvað varðar appelsínugulu og rauðu ljósin hefur þeirri skýringu meðal annars verið varpað fram, eins og fyrr er getið, að hér hafi verið um blys frá herflugvélum að ræða. En margir sjónarvottanna eru ekki sáttir við þessar skýringar og eru þess fullvissir að þeir hafi séð eitthvað einstakt á himninum yfir Phoenix þetta kvöld en líklega fáum við seint rétta svarið við hvað það var sem allt þetta fólk sá.
Algengt er að tilkynnt sé um fljúgandi furðuhluti yfir Phoenix en margar tilkynningar um dularfullan ljósagang yfir borginni berast árlega.