,,Við vorum að opna Grímsána í gærmorgun og þetta gekk flott. Það komu 17 laxar á land og annað eins slapp af hjá veiðimönnum,“ sagði Jón Þór Júlíusson er við spurðum frétta af opnunni. ,,Það er mikið líf á neðstu svæðum árinnar,“ sagði Jón ennfremur.
,,Við fengum fjóra flotta laxa fyrir hádegi,“ sagði Jón Helgi Björnsson á Laxmýri en Laxá í Aðaldal opnaði og það komu laxar líka eftir hádegi.
,,Ég sá áðan að það var verið að landa laxi hérna fyrir neðan hjá mér. Þetta byrjar vel hjá okkur. Allt flottir laxar,“ sagði Jón Helgi ennfremur.
Mynd. Laxveiðin byrjar víða vel og í Grímsá veiddist þessi flotti lax í gærmorgun. Mynd Jón Þ.