Hvar varst þú þegar Ísland skoraði sitt fyrsta mark á HM? Þetta er spurning sem mun eflaust brenna á vörum knattspyrnuáhugamanna um ókomin ár þegar HM í fótbolta berst í tal. Þeir sem fylgst hafa með landsliðinu í gegnum árin muna eflaust hvar þeir voru þegar Birkir Bjarnason skoraði jöfnunarmarkið gegn Portúgal á EM 2016.
Knattspyrnumaðurinn Ómar Ingi Guðmundsson opinberar á spaugilegan hátt hvar hann var þegar hann Alfreð Finnbogason jafnaði gegn Argentínu í dag. Það gerði hann á Twitter og er óhætt að segja að hann hafi fengið einhverja til að brosa út í annað.
Hann segir:
Hvar varst þú þegar Ísland skoraði sitt fyrsta mark á HM. Ég var að skeina syni mínum á klósettinu og heyrði bara öskrin í öllu fólkinu í stofunni #fotboltinet #HmRuv #argisl
— Ómar Ingi (@OmarIngiGud) June 16, 2018