,,Við erum að opna Laxá í Kjós fyrr en í fyrra og það er langt síðan fyrsti laxinn sást í henni. Þetta lofar bara góðu og vatnið er sérlega flott,“ sagði Jón Þór Júlíusson er við spurðum hann um stöðuna í veiðiám hjá Hreggnasa þetta árið. Laxá í Kjós opnar með formlegum hætti á föstudag.
Veiði í ám víða byrjar fyrr en áður hefur þekkst. Fiskurinn er farinn að koma fyrr svo útlitið er bara gott svona í upphafi og veiðimenn víðast hvar bjartsýnir á framhaldið.
,,Ef lítum aðeins á fleiri opnanir á næstu dögum má nefna að veiðin í Grímsá hefst 21. júní, Hafralónsá 24 júní, Laxá í Dölum 26 júní, Krossá 26 júní og Svalbarðsá 1.júlí. Þetta lítur bara vel út,, sagði Jón Þór ennfremur.
Mynd. Jón Þór Júlíusson kastar flugunni fyrir laxa í Laxfossi í Laxá í Kjós. Mynd G.Bender