fbpx
Laugardagur 02.maí 2026
Pressan

Þetta ættir þú ekki að birta á Facebook

Ritstjórn Pressunnar
Fimmtudaginn 12. apríl 2018 20:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sumt er ekki til þess fallið að birta á Facebook og þar með deila með umheiminum. Aðallega út af því að þetta fer í taugarnar á sumum og lítur einfaldlega út fyrir að vera mont og ekkert annað. En samt sem áður birta margir ýmislegt á Facebook sem er til þess fallið að ergja Facebookvinina mikið.
Hér verða nefnd til sögunnar nokkur atriði sem ætti aldrei að birta á Facebook.
1. Hógvært mont. Hér er átt við það þegar monti er pakkað inn í hægversku en margir telja að þetta sé eitt það alversta sem birt er á Facebook. Þetta geta verið „nýjar“ fréttir úr vinnunni þar sem viðkomandi hrósar sjálfum sér og eigin frama. Nú þá er auðvitað algjörlega óþolandi þegar fólk montar sig af frábærum árangri á prófi þrátt fyrir að hafa „varla lesið stafkrók fyrir prófið“.
2. Ekki stæra þig af hversu marga Facebookvini þú átt. Fólk er fyrir löngu farið að kunna svo vel á Facebook að það vekur ekki lengur aðdáun þess að einhver eigi 900 „vini“ á Facebook. Allir vita að enginn á 900 vini, í besta falli er hér um kunningja að ræða. Þá má spyrja af hverju á þá að vera „vinur“ þeirra á Facebook? Þetta er eiginlega bara eins og aumkunarverður eltingarleikur við vinsældir. Þess vegna er góð hugmynd að taka til á vinalistanum. Góð regla er að ef þú myndir ekki heilsa viðkomandi „vini“ á götu úti þá er engin ástæða til að vera vinur hans á Facebook.
3. Fyllerísmyndir. Það er kannski í lagi að slíkar myndir birtist á meðan fólk er ungt að árum, er jafnvel í námi og stunda skemmtanalífið. En þegar fólk er orðið aðeins eldra og lífið kannski aðeins alvarlegra er ekki gott að birta slíkar myndir. Facebookvinum þínum er nefnilega alveg sama hversu full/ur þú varst um síðustu helgi og þetta getur eiginlega bara orðið vandræðalegt með endurteknum myndbirtingum.
 
4. Afbrot. Þetta er auðvitað svo augljóst en við nefnum þetta nú samt sem áður. Þú ættir aldrei að birta myndir eða færslur á Facebook sem snúast um ólöglegt athæfi sem þú hefur tekið þátt í. Fyrst og fremst af því að um ólöglegt athæfi er að ræða en það er einnig bara helber heimska að skrifa um hvernig þér tókst að koma nýja bílnum í 220 km/klst eða hvernig þú „barðir“ vitið í einhvern vitleysing um síðustu helgi.
5. Börnin þín. Það er í lagi að birta myndir af börnum á Facebook svo lengi sem það eru ekki óviðeigandi myndir. Það hafa ekki allir áhuga á að sjá börnin þín þakin eigin saur eftir „smá óhapp“ á skiptiborðinu eða útötuð í mat þegar þau eru að læra að borða sjálf.
6.  Megrunin þín. Það er kannski mikil hvatning fyrir þig að deila því með öllum öðrum hversu vel þér gengur að léttast. En hugsaðu þig aðeins um áður en þú deilir slíku. Sumir skrifa að þeir hafi lést um 1,5 kíló í vikinnu og hafi bara lifað á soðnum kjúklingi og baunum. En hvað ef eitthvað klikkar í þessu, hvernig ætlar þú þá að útskýra það?
7. Myndir úr fríinu. Það er ekki leiðinlegt að gleðjast yfir góðu sumarfríi annarra þegar nokkrar myndir eru birtar á Facebook en þegar þetta verður albúm með 300 myndum er þetta frekar orðið mont en að segja vinum þínum að þú sért að njóta þess að vera í fríi. Ef þú ert með opin Facebookaðgang er þess utan ekki skynsamlegt að segja frá því að þú sért í fríi, það auðveldar innbrotsþjófum störf sín til muna.
8. Góðverkin þín. Það er ákveðin jafnvægislist að segja frá góðverkum þínum. Ef þú skrifar á Facebook að þú hafir gefið blóð eða gefið 5.000 krónur í landssöfnun til styrktar góðu málefni þá er hætt við að margir telji það vera mont þrátt fyrir að um góðverk hafi verið að ræða. Ef þú hvetur aðra til að gera það sama og þú getur það farið illa í marga. Það er því kannski rétt að halda aftur af birtingu slíkra „frétta“.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Kynntist stúlkunni þegar hún var 11 ára gömul – Eftir morðið keypti hann keðjusagir, uppblásna sundlaug og líkpoka

Kynntist stúlkunni þegar hún var 11 ára gömul – Eftir morðið keypti hann keðjusagir, uppblásna sundlaug og líkpoka
Pressan
Fyrir 2 dögum

92 ára maður sakaður um að myrða 87 ára eiginkonu sína

92 ára maður sakaður um að myrða 87 ára eiginkonu sína
Pressan
Fyrir 3 dögum

Á yfir höfði sér þunga refsingu fyrir að sleikja rör

Á yfir höfði sér þunga refsingu fyrir að sleikja rör
Pressan
Fyrir 3 dögum

Óhugnanleg ráðgáta leyst – Lík fannst sundurbútað í ferðatöskum árið 1998

Óhugnanleg ráðgáta leyst – Lík fannst sundurbútað í ferðatöskum árið 1998
Pressan
Fyrir 4 dögum

Missti dóttur sína tíu árum eftir mislingasmit – þetta vill hún að allir foreldrar viti

Missti dóttur sína tíu árum eftir mislingasmit – þetta vill hún að allir foreldrar viti
Pressan
Fyrir 4 dögum

Fjórir handteknir í 43 ára gömlu morðmáli – hlaðvarp gegndi lykilhlutverki

Fjórir handteknir í 43 ára gömlu morðmáli – hlaðvarp gegndi lykilhlutverki
Pressan
Fyrir 5 dögum

Dularfull dauðsföll vísindamanna ekki bara bundin við Bandaríkin

Dularfull dauðsföll vísindamanna ekki bara bundin við Bandaríkin
Pressan
Fyrir 5 dögum

Foreldrar sakaðir um gáleysi eftir að sonur þeirra kastaði styttu fram af svölum – þrítug kona lést

Foreldrar sakaðir um gáleysi eftir að sonur þeirra kastaði styttu fram af svölum – þrítug kona lést