Kínverski ríkisfjölmiðillinn The Global Times skýrir frá þessu. Þar segir að öll myndskeið með Gurru grís hafi nú verið fjarlægð af hinum vinsæla Douyin vef.
The Guardian segir að þessi ritskoðun sé tilkomin vegna mikilla vinsælda Gurru en hún er orðinn svo vinsæl í Kína að fólk notar hana mikið til að skapa sína eigin alþýðumenningu. En það er einmitt það sem fer fyrir brjóstið á flokknum einráða því þessi nýja alþýðumenning, sem er byggð á Gurru grís, fellur ekki að kröfum flokksins.
Fólk hefur birt myndskeið á Douyin þar sem það sýnir húðflúr eða ýmsan varning tengdan Gurru grís. Það eru þessi myndbönd sem hafa nú verið fjarlægð.
Gurra grís og félagar hennar eru sagðar vera latar týpur sem ráfa stjórn- og stefnulaust um sem sé algjör mótsögn við þá ungu kynslóð sem kommúnistaflokkurinn vill ala upp.
Gurra grís var kynnt til sögunnar í Kína fyrir þremur árum þegar ríkissjónvarpið CCTV byrjaði að sýna þætti um hana. Vinsældirnar hafa verið ótrúlegar og nú er verið að reisa tvo Gurru grís skemmtigarða í Peking og Shanghai.