Khloe Kardashian og Tristan Thompson eru nú að jafna sig eftir annasama tíma að undanförnu, en eins og kunnugt er fæddi Khloe dótturina True á dögunum í skugga frétta af framhjáhaldi Tristans.
Khloe og Tristan hafa verið saman frá árinu 2016 en Tristan er sagður hafa haldið framhjá Kardashian með fleiri en einni konu. Aðeins er rúm vika síðan hann sást kyssa konu á skemmtistað í New York, en síðar um kvöldið sást hann fara með sömu konu upp á hótel og koma út með henni daginn eftir.
Önnur kona steig nýlega fram og sagðist hafa átt í ástarsambandi með Tristan. Gekk hún svo langt að segja að hún væri ólétt og barnið væri mögulega Tristans.
Nú greinir slúðurpressan vestan hafs frá því að Tristan og Khloe séu að gera allt sem í þeirra valdi stendur til að bjarga sambandinu. Khloe sé reiðubúin til að gefa Tristan, sem er körfuboltamaður hjá Cleveland Cavaliers í bandarísku NBA-deildinni, annað tækifæri. En það verður ekki án skilyrða.
Þannig er Khloe sögð hafa bannað Tristan að horfa á naktar konur ef sambandið á að endast lengur. Verður honum bannað að fara á strippbúllur og hefur Khloe gefið honum skýr skilaboð þess efnis að minnka djammið.
Heimildarmaður The Sun segir að þau séu mjög ástfangin af hvort öðru og Tristan sé tilbúinn að ganga býsna langt til að halda sambandinu gangandi.