fbpx
Miðvikudagur 13.ágúst 2025
Eyjan

Samningar undirritaðir um nýja Vestamanneyjaferju – Smíðuð í Póllandi

Ritstjórn Eyjunnar
Þriðjudaginn 17. janúar 2017 17:52

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

herjolfurrrÍ dag voru undirritaðir samningar milli vegamálastjóra og fulltrúa pólsku skipasmíðamiðstöðvarinnar Crist S.A. um smíði nýrrar Vestmannaeyjaferju í dag og verður hún afhent sumarið 2018. Ríkiskaup sáu um útboð sem lauk með því að tilboði Crist S.A. í borginni Gdynia var tekið eftir norsk skipasmíðamiðstöð féll frá sínu tilboði.

Nýja ferjan mun rista grynna en gamli Herjólfur og er vonast til þess að hún geti því mun oftar siglt um Landeyjarhöfn en áður hefur verið mögulegt. Smíði skipsins hefst strax og mun henni verða lokið 20. júní á næsta ári og því má leiða líkur að því að þjóðhátíðin í ár verði sú síðasta þar sem gestir koma með gamla Herjólfi til Eyja.

Viðstaddir undirskriftina í dag voru einnig fulltrúar Vestmannaeyjabæjar, Ríkiskaupa og innanríkisráðuneytisins. Auk Hreins Haraldssonar vegamálastjóra og þeirra Romuald Teperski og Radoslaw Pallach frá Crist S.A. skrifuðu þau Sigurður Áss Grétarsson framkvæmdastjóri hjá Vegagerðinni, Hildur Sólveig Sigurðardóttir forseti bæjarstjórnar Vestmannaeyjabæjar, Halldór Sigurðsson forstjóri Ríkiskaupa og Sigurbergur Björnsson skrifstofustjóri hjá innanríkisráðuneytinu undir samninginn fyrir hönd kaupenda.

Crist S.A. er um 1500 manna fyrirtæki og með reynslu af smíðum skipa fyrir íslenska kaupendur og vinnur samkvæmt gæðakerfi en nánari upplýsingar um fyrirtækið má nálgast hér.

herfoflf

Í frétt á heimasíðu Vegagerðarinnar segir:

Meginmarkmið með nýrri Vestmannaeyjarferju er að bæta samgöngur milli Vestmannaeyja og Landeyjarhafnar, einkum við erfið vetrarskilyrði. Þær áskoranir sem við er að eiga eru grunnsævi, há tíðni af þungri úthafsöldu, hliðarstraumur og mikill vindur. Til að ráða við þessar aðstæður þarf ný ferja að vera eins grunnrist og mögulegt er, en jafnframt þarf að tryggja stjórnhæfni hennar við þessar aðstæður.

Þegar ráðist var í þetta verkefni var ákveðið  að markmiðið með hönnuninni yrði að ferjan ráði við dýpi á stórstraumsfjöru, 4,5 m (meðaldýpi 6,0 m) í innsiglingunni og 5,0 m (meðaldýpi 6,5 m) á rifi þar fyrir utan, 3,5 m háar úthafsöldur með sveiflutímann 5 – 12 sek., hliðarstraum allt að 3 m/s og 10 mínútna meðalvind að 22 m/s.

Nýja ferjan á að ráða við að halda uppi samgöngum við aðstæður við Landeyjahöfn, þó þannig að þegar öldurnar eru mjög langar, og 3,5 m eða hærri, getur skipið ekki siglt á háfjöru, þ.e.a.s. sæta þarf sjávarföllum

Aðrir eiginleikar nýjar Vestmannaeyjaferju:

Lengd x breidd x djúprista:  69,38 m x 15,1 m x 2,8 m.

Flutningsgeta: 329 m akreinar (73 fólksbílar) og 390 farþega + 150 tímabundið.

Siglingahraði: 15,5 hnútar

Afl: 3 x 1230 kW dísil knúnir rafalar, 2 x 1.700 kW „azipull“ skrúfur.

Tvinntækni: Skrúfurnar verða knúnar áfram af rafmótorum sem fá afl sitt frá rafölunum og rafgeymum eftir því sem hagkvæmast er hverju sinni.  Fyrirkomulagið sparar um 30% miðað við orkunotkun Herjólfs og býður upp á frekari olíusparnað í framtíðinni með því að stækka rafhlöður og að nýta  landrafmagn til hleðslu þeirra eftir því sem hagkvæmt kann að þykja í framtíðinni.

  Útlit nýrrar Vestmannaeyjaferju, teikningar (pdf)

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Nína Richter skrifar: Til varnar „mömmuklámi“

Nína Richter skrifar: Til varnar „mömmuklámi“
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Thomas Möller skrifar: Meiri fræðsla, minni hræðsla

Thomas Möller skrifar: Meiri fræðsla, minni hræðsla
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Óttar Guðmundsson skrifar: Stjörnustund ráðherrans

Óttar Guðmundsson skrifar: Stjörnustund ráðherrans
Eyjan
Fyrir 1 viku

ESB-aðild: Eldstormur geisar – viljum við standa úti eða fara í skjól?

ESB-aðild: Eldstormur geisar – viljum við standa úti eða fara í skjól?
Eyjan
Fyrir 2 vikum

Tollasamningur ESB og Bandaríkjanna: Sterkur leikur hjá Ursulu von der Leyen að veita bandarískum vörum tollfrelsi í Evrópu

Tollasamningur ESB og Bandaríkjanna: Sterkur leikur hjá Ursulu von der Leyen að veita bandarískum vörum tollfrelsi í Evrópu
Eyjan
Fyrir 2 vikum

Stefán horfir til baka – „Við vorum alltaf að slást hvert við annað“

Stefán horfir til baka – „Við vorum alltaf að slást hvert við annað“