fbpx
Sunnudagur 27.júlí 2025
Eyjan

Forsætisráðherra biður vistfólk á Kópavogshælinu afsökunar: Sár reynsla aldrei bætt að fullu

Ritstjórn Eyjunnar
Föstudaginn 10. febrúar 2017 15:44

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Skýrsla vistheimilanefndar um vistun barna á Kópavogshælinu var rædd á fundi ríkisstjórnarinnar í dag. Það er erfitt, en nauðsynlegt, að horfast í augu við það hversu slæmar aðstæður fatlaðra einstaklinga, barna og fullorðinna, voru á Kópavogshælinu. Eins og lesa má í skýrslu nefndarinnar hafði Kópavogshælið ákveðna sérstöðu en önnur vistheimili áttu þó margt sammerkt með hælinu. Ljóst er að af rannsókn nefndarinnar má draga ýmsan lærdóm um stöðu fatlaðra barna og foreldra þeirra og almennt um aðbúnað fatlaðs fólks á stofnunum,“ segir Bjarni Benediktsson forsætisráðherra í yfirlýsingu sem forsætisráðuneytið sendi út nú síðdegis.

„Ég er afar þakklátur fyrir að þessu máli hafi verið gerð svo vönduð o góð skil og tel það mikilvægan hluta af uppgjöri við þetta tímabil í sögu þjóðarinnar.

Ég tala í dag til allra þeirra sem vistuð voru sem börn á Kópavogshælinu og fjölskyldna þeirra:

Fyrir hönd ríkisstjórnarinnar bið ég ykkur afsökunar á þeirri ómannúðlegu meðferð og margháttuðu vanrækslu sem börn bjuggu við á Kópavogshælinu. Sömuleiðis bið ég afsökunar allt fatlað fólk, börn og fullorðna, sem hefur verið vistað á stofnunum hér á landi og sætt þar ofbeldi eða illri meðferð.

Sár reynsla verður aldrei bætt að fullu, en á grundvelli laga um sanngirnisbætur verður nú unnið að því að bæta þeim sem urðu fyrir ofbeldi eða illri meðferð þann skaða sem af því hefur hlotist, að því marki sem það er unnt. Þá eru ráðherrar nú að fara yfir tillögur sem settar eru fram í skýrslunni og meta til hvaða ráðstafana verður gripið í því skyni að standa vörð um mannréttindi fatlaðs fólks í íslensku samfélagi,“ segir forsætisráðherra í yfirlýsingu sinni.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 5 dögum

Sakar ríkisstjórnina um hræðsluáróður í ESB-málinu

Sakar ríkisstjórnina um hræðsluáróður í ESB-málinu
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Segir stjórnarandstöðuna bergmála rússneskan áróður og lygar – „Af hverju vill hægrið berjast gegn vestrænum gildum?“

Segir stjórnarandstöðuna bergmála rússneskan áróður og lygar – „Af hverju vill hægrið berjast gegn vestrænum gildum?“