fbpx
Föstudagur 08.maí 2026
Eyjan

Fullveldisréttur Íslands takmarkaður, vilji kjósenda skiptir engu: Hljótum að taka stöðu með flóttamönnum

Ritstjórn Eyjunnar
Föstudaginn 3. febrúar 2017 10:42

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Reimar Pétursson hæstaréttarlögmaður og formaður Lögmannafélagsins.

„Ísland hlýtur að taka stöðu með flóttamönnum á móti öflum sem vilja neita þeim um griðastað með gerræðislegum ákvörðunum. Önnur afstaða væri til þess fallin að grafa undan alþjóðlegu samstarfi á þessu sviði og varpa skugga á afstöðu Íslands til mannréttinda, segir Reimar Pétursson, formaður Lögmannafélags Íslands.

Reimar segir í grein í Fréttablaðinu í dag, að ríki heims séu bundin af alþjóðlegum samningum um mannréttindi. Flóttamenn njóti samkvæmt þeim réttinda án manngreinarálits vegna kynþátta, trúarbragða eða ættlands. Þá sé óheimilt að endursenda þá til ríkis þar sem lífi þeirra eða frelsi myndi ógnað. Hvort svo sé þurfi að meta sérstaklega fyrir hvern og einn flóttamann og þeim sé frjálst að bera slíkt mat undir dómstóla.

„Þessir alþjóðlegu samningar takmarka fullveldisrétt Íslands og annarra ríkja til að taka gerræðislegar ákvarðanir um aðgang flóttamanna að landssvæðum þeirra. Á okkar tímum fela þessar takmarkanir á fullveldi í sér ákveðnar áskoranir fyrir ríki heims, en yfirlýstur vilji samningsaðila stendur óbreyttur: að standa með flóttamönnum án tillits til ættlands þeirra,“ segir Reimar.

„Ríki sem virðir þessi réttindi að vettugi, hvort heldur í stóru eða smáu, grefur undan alþjóðlegu samstarfi og varpar skugga á afstöðu sína til mannréttinda. Vilji kjósenda í viðkomandi ríki skiptir hér engu, því alþjóðlegu sáttmálarnir endurspegla réttindi sem allir í heiminum vilja njóta og samhug sem flestir vilja sýna flóttamönnum á vergangi,“ bætir hann við.

Formaður Lögmannafélagsins segir leitt að sjá menn hér á landi, sem vilji virða að vettugi mannréttindi flóttamanna og skýli sér bak við orðræðu um að málefni flóttamanna verði að ræða af raunsæi.

„Miðað við stöðu þjóðaréttar getur slík umræða aldrei talist raunsæ. Hún er einfaldlega lýðskrum sem beinist að þeim sem minnst mega sín og á lítið, ef nokkuð, skylt við málefnalega umræðu um stöðu innflytjenda sem ekki teljast flóttamenn,“ segir formaður Lögmannafélags Íslands.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Orðið á götunni: Verður Ari Edwald borgarstjóraefni minnihlutans?

Orðið á götunni: Verður Ari Edwald borgarstjóraefni minnihlutans?
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Samfylking, Viðreisn og óháðir á Seltjarnarnesi kynna stefnuskrá sína og opna nýjan vef

Samfylking, Viðreisn og óháðir á Seltjarnarnesi kynna stefnuskrá sína og opna nýjan vef
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Ragnar Þór Ingólfsson: Erum að einfalda byggingarreglugerð – fer úr 18 köflum í 8

Ragnar Þór Ingólfsson: Erum að einfalda byggingarreglugerð – fer úr 18 köflum í 8
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Sigurður Hólmar Jóhannesson skrifar: Þetta var fyrirsjáanlegt

Sigurður Hólmar Jóhannesson skrifar: Þetta var fyrirsjáanlegt
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Þorsteinn Pálsson skrifar: Orsök kúvendingar í Húsi atvinnulífsins

Þorsteinn Pálsson skrifar: Orsök kúvendingar í Húsi atvinnulífsins
Eyjan
Fyrir 1 viku

Halla Hrund Logadóttir: Evrópusambandsaðild eykur líkur á vaxtalækkunum

Halla Hrund Logadóttir: Evrópusambandsaðild eykur líkur á vaxtalækkunum
Eyjan
Fyrir 1 viku

Forystufólk Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði sakað um að dreifa röngum upplýsingum um leikskólamál – „AI kokkaði þetta upp af alnetinu“

Forystufólk Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði sakað um að dreifa röngum upplýsingum um leikskólamál – „AI kokkaði þetta upp af alnetinu“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Halla Hrund Logadóttir: Forgangsmál að tryggja forgang almennings í orkumálum

Halla Hrund Logadóttir: Forgangsmál að tryggja forgang almennings í orkumálum