Stjórn Samtaka ferðaþjónustunnar hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna boðaðs verkfalls flugvirkja. Þar er sagt að aðgerðirnar muni raska flugi hjá 10.000 farþegum á degi hverjum og gagnrýnt að flugvirkjafélagið hafi frá 2009 boðað til verkfalls á eins og hálfs árs fresti, að meðaltali, með tilheyrandi óvissu og höggi fyrir ferðaþjónustuna.
Tilkynningin er svohljóðandi:
Flugvirkjafélag Íslands hefur boðað til ótímabundins verkfalls frá og með nk. sunnudegi
17. desember náist ekki samningar. Komi til verkfalls mun það strax hafa gríðarleg
áhrif, en ætla má að aðgerðirnar muni raska flugi hjá 10 þúsund farþegum dag hvern
sem aðgerðir flugvirkja standa.
Frá því árið 2009 hefur Flugvirkjafélag Íslands boðað til verkfalls á u.þ.b. eins og hálfs
árs fresti með tilheyrandi óvissu og höggi fyrir ferðaþjónustuna á Íslandi. Það segir sig
sjálft að slíkt vinnumarkaðslíkan gengur ekki upp og er fullreynt. Tryggja verður
stöðugt rekstrarumhverfi greinarinnar til framtíðar. Það er umhugsunarefni hvernig
fámennir hópar í kjarabaráttu geta ítrekað komið ferðaþjónustunni í uppnám.
Jól og áramót eru handan við hornið, en Ísland sem áfangastaður fyrir ferðamenn yfir
hátíðirnar hefur verið að styrkjast á undanförnum árum. Ferðaþjónustan er afar
viðkvæm atvinnugrein, sérstaklega á landsbyggðinni, og má við litlum áföllum ásamt
því að afleiddar atvinnugreinar eiga mikið undir að flugsamgöngur til og frá landinu
séu greiðar.
Verkfallshótun flugvirkja hefur þegar valdið miklum óróa meðal fjölmargra fyrirtækja
í ferðaþjónustu og hafa afbókanir þegar borist ásamt því að ferðaheildsalar eru
uggandi. Umræðan ein og sér hefur þannig þegar haft áhrif. Tryggar samgöngur til og
frá landinu er eitthvað sem verður að vera hægt að treysta á.
Ferðaþjónustan er stærsta útflutningsatvinnugrein landsins. Á síðasta ári námu
gjaldeyristekjur af ferðaþjónustu um 39% af gjaldeyristekjum þjóðarinnar, eða 463
milljörðum króna. Á sama tíma áætla SAF að beinar, nettó, tekjur ríkis og sveitarfélaga
af greininni hafi numið um 54 milljörðum. Þá eru óbein áhrif greinarinnar mikil og því
mun stöðvun flugs þess félags sem flýgur með 10 þúsund ferðamenn á dag, og hefur
mesta markaðshlutdeild, hafa mikil neikvæð áhrif á hagkerfið í heild sinni. Á hverjum
degi sem verkfall stendur yfir er fjárhagslegt tjón fyrir þjóðarbúið því gífurlegt.
Samtök ferðaþjónustunnar hvetja samningsaðila til að leita allra leiða til að ná sáttum
í deilunni sem fyrst og eyða þannig óvissu fyrir ferðaþjónustuna og landsmenn alla.
Ábyrgð samningsaðila er mikil, enda er flug aðal samgöngumáti ferðamanna til og frá
landinu.
SAF treysta því að samningar náist sem allra fyrst þannig að ekki komi til aðgerða af
hálfu flugvirkja sunnudaginn 17. desember.