fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Eyjan

Ráðherrar síðustu ríkisstjórnar úthlutuðu 9 milljónum af skúffufé eftir stjórnarslit

Ari Brynjólfsson
Laugardaginn 16. desember 2017 15:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Bjartrar framtíðar í janúar á þessu ári.

Ráðherrar síðustu ríkisstjórnar úthlutuðu rúmlega 17 milljónum af skúffufé sínu til ýmissa mála það sem af er þessu ári. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, var gjafmildasti ráðherrann, en hún úthlutaði alls 3,3 milljónum króna. Guðlaugur Þór Þórðarson, Sigríður Á. Andersen og Jón Gunnarsson úthlutuðu engu skúffufé og rennur féð því aftur í ríkissjóð. Greint er frá þessu í helgarblaði DV.

Ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Bjartrar framtíðar var slitið kvöldið 14. september síðastliðinn. Áður en ríkisstjórninni var slitið höfðu ráðherrarnir samanlagt útdeilt rúmlega 8,5 milljónum króna. Nú þegar ríkisstjórnin hefur lokið störfum og ný tekin við kemur í ljós að ríkisstjórnin notaði alls 17,5 milljónir króna af skúffufénu, eða rúmlega 9  milljónum króna eftir að ríkisstjórninni var slitið. Björt Ólafsdóttir fyrrverandi umhverfisráðherra komst næst því að tæma skúffuna, munaði aðeins rétt rúmlega 10 þúsund krónum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Willum Þór Þórsson: Íþróttahreyfingin samofin sjálfstæðisbaráttu þjóðarinnar

Willum Þór Þórsson: Íþróttahreyfingin samofin sjálfstæðisbaráttu þjóðarinnar
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Fylgi stjórnmálaflokka: Samfylkingin og Miðflokkurinn styrkjast – Sjálfstæðisflokkur og Framsókn áfram á niðurleið

Fylgi stjórnmálaflokka: Samfylkingin og Miðflokkurinn styrkjast – Sjálfstæðisflokkur og Framsókn áfram á niðurleið
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Thomas Möller skrifar: Gamlar fréttir og nýjar

Thomas Möller skrifar: Gamlar fréttir og nýjar
EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum
Landráðamenn
Eyjan
Fyrir 1 viku

Grímur Sæmundsen: Fór á bólakaf í Bláa lónið

Grímur Sæmundsen: Fór á bólakaf í Bláa lónið
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Jón Gnarr skrifar: Meitlað í stein

Jón Gnarr skrifar: Meitlað í stein
Eyjan
Fyrir 1 viku

Regína ætlar að hætta sem bæjarstjóri Mosfellsbæjar

Regína ætlar að hætta sem bæjarstjóri Mosfellsbæjar
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Sigmundur Davíð borgarstjóraefni? – Miðflokkur á flugi og átök um lista Sjálfstæðisflokksins

Orðið á götunni: Sigmundur Davíð borgarstjóraefni? – Miðflokkur á flugi og átök um lista Sjálfstæðisflokksins