fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Eyjan

Lilja Alfreðsdóttir: „Liður í þeirri stórsókn sem ríkisstjórnin hefur boðað í menntamálum“

Trausti Salvar Kristjánsson
Föstudaginn 15. desember 2017 08:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fjárveitingar til framhalds- og háskólanna í landinu hækka um 3,8 milljarða króna á næsta ári, samkvæmt fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar sem kynnt var í gærmorgun. Hækkun til háskólanna nemur 2,8 milljörðum og framlög til framhaldsskólanna hækka um 1.040 milljónir miðað við framlagt fjárlagafrumvarp fyrir 2017.

Með auknum fjárveitingum til háskólastigsins er ætlunin að efla bæði kennslu og rannsóknir, svo bæta megi þjónustu við nemendur, auka vísindastarf og styrkja alþjóðlegt samstarf.

Með auknum fjárveitingum til framhaldsskólastigsins er stuðlað að því að markmiðum um fjármögnun framhaldsskólastigsins verði náð. Fénu er ætlað að efla starfsemi skólanna, auk þess sem stigin verða stór skref til að efla iðn- og verknám.


„Þessi mikla aukning er liður í þeirri stórsókn sem ríkisstjórnin hefur boðað í menntamálum. Við ætlum að standast samanburð við þær þjóðir sem standa sig best og tryggja að nemendur fái bestu mögulegu þjónustu. Skólarnir eru lykilstofnanir í samfélaginu og það er tímabært að uppfylla þarfir þeirra, svo gæði starfsins verði tryggð.”

sagði Lilja Alfreðsdóttir, menntamálaráðherra.

Starfsemi íslenskra háskóla hefur stóraukist á undanförnum árum,  með auknu framboði náms á öllum stigum, aukinni rannsóknarstarfsemi og virku erlendu samstarfi. Auk kennslu og rannsókna innan skólanna styðja þeir við víðtæka þekkingarstarfsemi, tryggja menntun fagfólks fyrir íslenskt atvinnulíf, styðja við menningu og listir og stuðla að upplýstri samfélagsumræðu og sívaxandi nýsköpun.

Meginmarkmið með starfsemi á sviði framhaldsskóla er að brautskráðir nemendur verði virkir þátttakendur í samfélaginu, vel undirbúnir undir þátttöku á vinnumarkaði og fyrir fræðilegt og starfstengt háskólanám.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Íris og Páll hætta bæði í Eyjum

Íris og Páll hætta bæði í Eyjum
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Nína Richter skrifar: Þegar femínistarnir þagna

Nína Richter skrifar: Þegar femínistarnir þagna
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Ráðning Bjarna rauð dula framan í verkalýðshreyfinguna – Á að breyta Samtökum atvinnulífsins í fjölskyldufyrirtæki Engeyinga?

Orðið á götunni: Ráðning Bjarna rauð dula framan í verkalýðshreyfinguna – Á að breyta Samtökum atvinnulífsins í fjölskyldufyrirtæki Engeyinga?
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Sigmundur Ernir skrifar: Framsóknarflokknum hallað til hægri

Sigmundur Ernir skrifar: Framsóknarflokknum hallað til hægri
Eyjan
Fyrir 1 viku

Grímur Sæmundsen: Þrátt fyrir eldsumbrot höfum við getað haldið fullum dampi

Grímur Sæmundsen: Þrátt fyrir eldsumbrot höfum við getað haldið fullum dampi