fbpx
Laugardagur 15.nóvember 2025
Eyjan

Samtök ferðaþjónustunnar : „Skora á Isavia að endurskoða áform sín “

Trausti Salvar Kristjánsson
Fimmtudaginn 14. desember 2017 14:55

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Grímur Sæmundsen, formaður stjórnar SAF

Stjórn Samtaka ferðaþjónustunnar hafa sent frá sér ályktun, þar sem skorað er á Isavia að endurskoða hugmyndir sínar um fyrirhugaða gjaldtöku á hópbifreiðum, en sú gjaldtaka hefur farið fyrir brjóstið á mörgum innan ferðaþjónustunnar þar sem kostnaðurinn þykir ansi hár. Þá er einnig farið er fram á að skipuð verði nefnd um tekjuöflun ríkis og sveitarfélaga af ferðaþjónustu í samstarfi við atvinnugreinina. Þetta kemur fram í tilkynningu frá samtökunum.

 

„Gjaldtaka af ferðaþjónustunni hefur verið fyrirferðarmikil í umræðunni síðustu misseri. Öllum er í fersku minni þegar fyrri ríkisstjórn kynnti án fyrirvara fordæmalausa 118% hækkun virðisaukaskatts á greinina án nokkurs samráðs eða faglegra greininga. Ný ríkisstjórn hefur fallið frá þeirri fyrirætlan enda ljóst að slík hækkun hefði haft grafalvarlegar afleiðingar fyrir atvinnugreinina sem er í harðri alþjóðlegri samkeppni.
Ferðaþjónustan hefur jákvæð áhrif

Engum dylst að ferðaþjónustan hefur verið lykildrifkraftur í íslensku efnahagslífi á umliðnum árum.
Greinin hefur skapað gríðarlegar tekjur fyrir ríki og sveitarfélög og á ríkan þátt í þeirri velsæld sem
ríkir á Íslandi í dag. SAF áætla að á síðasta ári hafi beinar nettó tekjur ríkis og sveitarfélaga numið um
54 milljörðum króna af ferðaþjónustunni. Þá hefur verið áætlað að um 50% þess hagvaxtar sem við
höfum notið frá árinu 2010 sé tilkominn vegna ferðaþjónustunnar með beinum eða óbeinum hætti.
Það er staðreynd að vægi ferðaþjónustunnar í gjaldeyristekjum þjóðarbúsins er gríðarlegt og munar
um minna fyrir eyland sem á mikið undir viðskiptum við útlönd. Til viðbótar er atvinnuleysi í algjöru
lágmarki hér á landi og það um allt land ásamt því að ferðaþjónustan hefur stuðlað að jákvæðri
byggðaþróun um land allt.
Álögur aukast og nýjar hugmyndir um gjaldtöku

Þrátt fyrir þessar staðreyndir hefur kröftum helst verið beint í þá átt að finna leiðir til að ná í enn
aukna fjármuni með frekari skattheimtu á greinina. Þannig hækkaði gistináttagjald á hótel og
gistiheimili á árinu um 200% og gangi áætlanir stjórnvalda eftir munu álögur á bílaleigur hækka um
áramótin þegar vörugjöld á þeirra atvinnutæki hækka um 2,5 milljarða.
Nú þegar hefur Þingvallaþjóðgarður stóran hluta tekna sinna af þjónustugjöldum á
ferðaþjónustufyrirtæki. Vatnajökulsþjóðgarður hefur þegar tekið fyrstu skrefin og önnur svæði í eigu
ríkisins horfa til þess að fylgja í kjölfarið.
Enn frekari hugmyndir eru í nýjum stjórnarsáttmála, m.a. að auka enn skattheimtu í gegnum
gistináttagjaldið, í gegnum komu- og brottfarargjöld sem og hvers konar þjónustugjöld.
Ferðaþjónustan kallar eftir að samræmis sé gætt hvað gjaldtöku varðar, þannig að fyrirkomulag og
aðlögun haldist í hendur. Þarna eiga stjórnvöld að ganga fram með góðu fordæmi.
Hafa ber í huga að ekki er línulegt samband á milli fjölgunar ferðamanna og afkomu greinarinnar.
Blikur eru á lofti. Samkeppnisstaða ferðaþjónustunnar við aðra áfangastaði hefur versnað á árinu,
m.a. vegna mikilla launahækkana, fjármagnskostnaðar og styrkingar á gengi krónunnar.
Fordæmalaus gjaldtaka Isavia ohf

Nýjasta gjaldtökuhugmyndin kom fram á dögunum þegar Isavia ohf. kynnti innheimtu
bílastæðagjalda fyrir hópferðabíla við flugstöð Leifs Eiríkssonar. Gjaldtakan, sem á að hefjast 1. mars
2018, er án fordæma og án alls samtals við stærsta viðskiptavin Isavia ohf. – ferðaþjónustuna.
Upphæðirnar sem nefndar eru til sögunnar og aðferðafræðin er ekki í neinu samræmi við það sem
gerist og gengur á flugvöllum í Evrópu eða á öðrum svæðum. Gangi áætlanir Isavia ohf. eftir mun
gjaldið fyrir að stoppa í stæði 300 m. frá flugstöðunni til að taka á móti ferðamönnum vera 7.900 kr.
fyrir hópbifreiðar með 19 eða færri sæti en 19.900 kr. fyrir bifreiðar með fleiri en 20 sæti. Í London er
sambærilegt gjald um 3.900 kr. á Heathrow og 2.400 kr. á Gatwick. Í þessu samhengi er rétt að nefna
að eitt af gildum Isavia ohf., sem er fyrirtæki í opinberri eigu og í markaðsráðandi stöðu, er samvinna.
Stjórn SAF og fjölmennur félagsfundur sem samtökin stóðu fyrir á dögunum gagnrýna ætlaða
gjaldtöku og skora á Isavia ohf. að endurskoða áform sín í góðu samkomulagi við ferðaþjónustuna.
Tryggja þarf stöðugt rekstrarumhverfi

Þegar kemur að stórum ákvörðunum sem snerta ferðaþjónustuna, hvort heldur sem er í formi laga-
eða reglugerðabreytinga, breytinga á skattkerfinu eða annarri gjaldtöku, loðir því miður við að slík áform eru kynnt einhliða og með allt of skömmum fyrirvara og án heildstæðrar hugsunar gagnvart atvinnugreininni. Ferðaþjónustan er þannig atvinnugrein að unnið er langt fram í tímann og því þarf að kynna allar slíkar breytingar með löngum fyrirvara. Ferðaþjónustan þarf að búa við stöðugt rekstarumhverfi þannig að samkeppnishæfni hennar skerðist ekki, enda á Ísland í harðri samkeppni við aðra áfangastaði um hylli ferðamanna.

 

Samvinna er vænlegust til árangurs

SAF eru ekki mótfallin gjaldtöku eins og bílastæðagjöldum, en gjaldtakan þarf hins vegar að hafa
skýran tilgang. Gjaldtaka fyrir vel skilgreinda virðisaukandi þjónustu getur stutt við álagsstýringu og
dreifingu ferðamanna ásamt því að bæta gæði og þjónustu á hverjum ferðamannastað.
Í glænýjum stjórnarsáttmála kemur skýrt fram að samtal og samstarf sé leiðarstefið í nálgun nýrrar
ríkisstjórnar, m.a. þegar kemur að langtímastefnumörkun og gjaldtökumálum í ferðaþjónustunni. SAF
telja að leið samvinnu sé vænlegust til árangurs og að samræming og sanngirni eigi að vera
grunnurinn í þeirri vinnu.
Nefnd um tekjuöflun ríkis og sveitarfélaga af ferðaþjónustu sett á laggirnar

SAF kalla því eftir að sett verði á laggirnar hið fyrsta formleg nefnd um tekjuöflun ríkis og
sveitarfélaga af ferðaþjónustu með þátttöku hagsmunaaðila og stjórnvalda. Með henni ætti
markmiðið að vera að taka heildstæðar og stefnumarkandi ákvarðanir um gjaldtöku. Tryggja þarf í
auknum mæli umræðu og ákvarðanir tengdar uppbyggingu, skýru regluverki, skilvirkni greinarinnar
og stöðugu rekstrarumhverfi.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 2 dögum

Orðið á götunni: Willum nýtur vinsælda og virðingar – verður sennilega næsti formaður Framsóknar

Orðið á götunni: Willum nýtur vinsælda og virðingar – verður sennilega næsti formaður Framsóknar
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

María Rut Kristinsdóttir skrifar: Sleikipinnapólitík

María Rut Kristinsdóttir skrifar: Sleikipinnapólitík
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Smölun hafin hjá Sjálfstæðisflokknum – styrkleiki fylkinga kannaður á átakafundi

Orðið á götunni: Smölun hafin hjá Sjálfstæðisflokknum – styrkleiki fylkinga kannaður á átakafundi
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Þorsteinn Pálsson skrifar: Um breytingar og hitt sem ekki breytist

Þorsteinn Pálsson skrifar: Um breytingar og hitt sem ekki breytist
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Thomas Möller skrifar: Þáttaröðin „Evrópa brennur“

Thomas Möller skrifar: Þáttaröðin „Evrópa brennur“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Reynir Traustason: Mikil mistök að sameinast Kjarnanum

Reynir Traustason: Mikil mistök að sameinast Kjarnanum