fbpx
Laugardagur 08.nóvember 2025
Eyjan

Mikilvægt að eyða óvissu

Trausti Salvar Kristjánsson
Sunnudaginn 11. mars 2018 18:35

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Lilja Alfreðsdóttir, menntamálaráðherra

Eins og kunnugt er voru verulegir annmarkar á framkvæmd samræmdra könnunarprófa í íslensku og ensku, sem lögð voru fyrir nemendur í 9. bekk dagana 7. – 9. mars sl. Mennta- og menningarmálaráðuneytið telur nauðsynlegt að eyða sem fyrst allri óvissu um næstu skref og mun að afloknum samráðsfundi með hagsmunaaðilum kynna niðurstöðu sína í málinu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá ráðuneytinu.

 

 

 

„Það er skylda okkar að bregðast hratt við og sýna nemendum og fjölskyldum þeirra þá virðingu sem þau eiga skilið. Nú þegar hafa ýmsar leiðir verið ræddar og á næstu dögum munum við greina ítarlega kosti og galla hverrar fyrir sig, svo fundurinn á miðvikudaginn verði skilvirkur og markviss. Þar ætlum við að kafa djúpt í málið og komast að endanlegri niðurstöðu. Við munum horfa til ýmissa þátta, ekki síst sjónarmiða nemenda og kennara, og hvernig jafnræði milli nemenda verði best tryggt.“

 

 

sagði Lilja Alfreðsdóttir, menntamálaráðherra.

Boðað var til samráðsfundarins á miðvikudaginn var, eftir að vandkvæði urðu á framkvæmd prófs í íslensku. Ekki urðu hnökrar á framkvæmd prófs í stærðfræði á fimmtudag, en miklir við framkvæmd prófs í ensku á föstudag. Sérfræðingar frá ráðuneytinu og Menntamálastofnun hafa um helgina skoðað lagalegar og próffræðilegar hliðar málsins og mun ráðuneytið deila niðurstöðu þeirrar vinnu með fulltrúum hagsmunaaðila fyrir samráðsfundinn.

Fulltrúar frá Skólastjórafélagi Íslands, Félagi grunnskólakennara, samtökunum Heimili og skóla, forystufólk frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, umboðsmaður barna auk fulltrúa nemenda, Menntamálastofnunar og mennta- og menningarmálaráðuneytis munu sitja fundinn.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 5 dögum

Björn Jón skrifar: Að staðsetja Sjálfstæðisflokkinn

Björn Jón skrifar: Að staðsetja Sjálfstæðisflokkinn
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Reynir Traustason: Það verður bara að buffa þá, sagði yfirlögregluþjónninn

Reynir Traustason: Það verður bara að buffa þá, sagði yfirlögregluþjónninn
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Óttar Guðmundsson skrifar: Búðarrölt lögreglustjórans

Óttar Guðmundsson skrifar: Búðarrölt lögreglustjórans
Eyjan
Fyrir 1 viku

Reynir Traustason: Sérstakur fulltrúi Valhallar sendur til að anda ofan í hálsmál ritstjórnarinnar

Reynir Traustason: Sérstakur fulltrúi Valhallar sendur til að anda ofan í hálsmál ritstjórnarinnar
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Svarthöfði skrifar: Mogginn vill leiðrétta mannréttindabrot en bara „hóflega“

Svarthöfði skrifar: Mogginn vill leiðrétta mannréttindabrot en bara „hóflega“
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

María Rut Kristinsdóttir skrifar: Sorg þeirra er okkar sorg

María Rut Kristinsdóttir skrifar: Sorg þeirra er okkar sorg