fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Eyjan

Margrét Örnólfsdóttir hlýtur Íslensku bjartsýnisverðlaunin 2017

Trausti Salvar Kristjánsson
Þriðjudaginn 2. janúar 2018 20:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Margrét Örnólfsdóttir, handritshöfundur og tónlistarmaður, hlýtur Íslensku bjartsýnisverðlaunin 2017 sem afhent voru á Kjarvalsstöðum í dag.  Forseti Íslands, hr. Guðni Th. Jóhannesson, afhenti verðlaunin, sem eru áletraður gripur úr áli frá ISAL í Straumsvík og ein milljón króna í verðlaunafé.

Bjartsýnisverðlaunin eru menningarverðlaun sem hafa verið afhent árlega frá árinu 1981. Upphafsmaður þeirra var danski athafnamaðurinn Peter Bröste en ISAL hefur verið bakhjarl verðlaunanna frá því að Bröste dró sig í hlé árið 2000. Forseti Íslands hefur frá upphafi verið verndari verðlaunanna.

Í dómnefnd verðlaunanna eru Þórunn Sigurðardóttir, Magnús Geir Þórðarson, Rannveig Rist og Örnólfur Thorsson.

Margrét Örnólfsdóttir er fædd árið 1967. Hún lauk 8. stigi í píanóleik frá Tónlistarskólanum í Reykjavík árið 1994 og starfaði lengi sjálfstætt sem tónlistarmaður, samdi tónlist fyrir leikhús og kvikmyndir og gaf út barnaplötur. Síðustu árin hefur hún einkum getið sér gott orð sem handritshöfundur.

Í umsögn dómnenfdar kemur fram að Margrét sé gott dæmi um listamann 21. aldarinnar, sem fetar ótroðnar slóðir, vinnur á mörgum sviðum lista og tengir þannig greinarnar og reynslu sína þvert á hefðbundna skilgreiningu. Nú síðast skrifaði hún þáttaröðina Fanga sem naut mikilla vinsælda og hefur verið seld til fjölmargra sjónvarpsstöðva í Evrópu. Meðal annara þátta sem hún hefur unnið að eru Réttur, Pressa, Svartir englar og Ófærð.

Margrét hefur einnig skrifað fyrir leiksvið, leikgerð að Lísu í Undralandi sem sett var upp hjá Leikfélagi Akureyrar í fyrravetur, einleikinn Kameljón og útvarpsverkið Skuggablóm sem flutt var á RÚV í fyrra.

Margrét hefur skrifað skáldsögur fyrir börn og unglinga, meðal annars bókaflokkinn um Aþenu og hafa bækur hennar unnið til fjölda viðurkenninga.

Þá hefur  Margrét verið formaður Félags leikskálda og handritshöfunda frá árinu 2013 auk þess að sitja í stjórn Norrænu leikskáldasamtakanna og stjórn Bandalags íslenskra listamanna.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Nína Richter skrifar: Þegar femínistarnir þagna

Nína Richter skrifar: Þegar femínistarnir þagna
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Þorsteinn Pálsson skrifar: Nei er stefnubreyting til meiri óvissu

Þorsteinn Pálsson skrifar: Nei er stefnubreyting til meiri óvissu
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum
Landráðamenn
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Sverrir Páll Einarsson skrifar: Klárum frumvarp um brottfararstöð eins og þjóðin vill

Sverrir Páll Einarsson skrifar: Klárum frumvarp um brottfararstöð eins og þjóðin vill
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Orðið á götunni: Guðlaugur Þór ræður mestu um listann í Reykjavík – logar í illdeilum þótt reynt sé að tala um samstöðu

Orðið á götunni: Guðlaugur Þór ræður mestu um listann í Reykjavík – logar í illdeilum þótt reynt sé að tala um samstöðu
Eyjan
Fyrir 1 viku

Grímur Sæmundsen: Þrátt fyrir eldsumbrot höfum við getað haldið fullum dampi

Grímur Sæmundsen: Þrátt fyrir eldsumbrot höfum við getað haldið fullum dampi
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Óttar Guðmundsson skrifar: Losum fráflæðisstífluna

Óttar Guðmundsson skrifar: Losum fráflæðisstífluna
Eyjan
Fyrir 1 viku

Segir framkomuna í garð Guðmundar Inga skýrt dæmi um óheiðarleika stjórnmálanna – „Lygin festist“

Segir framkomuna í garð Guðmundar Inga skýrt dæmi um óheiðarleika stjórnmálanna – „Lygin festist“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Ólíkt hafast þeir að – sumir skilja að tímabundin skipun í embætti er tímabundin, aðrir ekki

Orðið á götunni: Ólíkt hafast þeir að – sumir skilja að tímabundin skipun í embætti er tímabundin, aðrir ekki