fbpx
Sunnudagur 03.maí 2026

Æfingar hafnar á Slá í gegn söngleiknum – Skelltu sér saman í bíó

Ragna Gestsdóttir
Mánudaginn 8. janúar 2018 12:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Æfingar á söngleiknum Slá í gegn eru hafnar í Þjóðleikhúsinu og í húsinu ríkir mikil stemning. Enda er viðfangsefnið einstaklega skemmtilegt: nýr, íslenskur söngleikur, þar sem stór hópur leikara, dansara og sirkuslistamanna skapar litríkan, óvæntan og fjölbreyttan heim, en tónlistin í söngleiknum er sótt í smiðju Stuðmanna.

Það er Guðjón Davíð Karlsson, Gói, sem semur söngleikinn sem gerist í litlu byggðarlagi á Íslandi. Þegar framsækinn draumóramaður mætir á svæðið með nýja sirkusinn sinn, ásamt fjölskyldu sinni og litríkum hópi sirkuslistafólks, hleypur nýtt blóð í leikfélagið á staðnum. Nú er loksins komið almennilegt tækifæri til að láta ljós sitt skína og slá ærlega í gegn!

Samlestur á Slá í gegn.

Útkoman er bráðfyndin, glæsileg og æsispennandi sýning þar sem við sögu koma séra Baddi hnífakastari (Siggi Sigurjóns), skeggjaða konan (Edda Björgvins), Frímann flugkappi (Stefán Karl) og fleiri stórskemmtilegar persónur. Slá í gegn er instaklega litríkt sjónarspil og frábær skemmtun fyrir alla fjölskylduna.

Leikhópurinn skellti sér í Háskólabíó á dögunum til að sjá myndina The Greatest Showman, en myndin er einmitt söngleikur sem segir ótrúlega sögu P.T. Barnum og hvernig sýn hans á afþreyingu varð upphafið að skemmtanabransanum eins og við þekkjum hann í dag. Hópurinn skemmti sér konunglega á sýningunni sem gaf tóninn fyrir undirbúning næstu vikna.

Frekari upplýsingar um Slá í gegn söngleikinn má finna hér.

 

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 klukkutímum

Samfylking, Viðreisn og óháðir á Seltjarnarnesi kynna stefnuskrá sína og opna nýjan vef

Samfylking, Viðreisn og óháðir á Seltjarnarnesi kynna stefnuskrá sína og opna nýjan vef
Fréttir
Fyrir 4 klukkutímum

Hagar styrkja níu frumkvöðlaverkefni í matvælaframleiðslu

Hagar styrkja níu frumkvöðlaverkefni í matvælaframleiðslu
Pressan
Fyrir 15 klukkutímum

Sakleysisleg Facebook-mynd vakti hroll: „Hvar er brosið þitt?“

Sakleysisleg Facebook-mynd vakti hroll: „Hvar er brosið þitt?“
Pressan
Fyrir 16 klukkutímum

„Við hófum samfarirnar“ – „Síðan hringdi hann myndsímtal til vinar síns“

„Við hófum samfarirnar“ – „Síðan hringdi hann myndsímtal til vinar síns“
Pressan
Fyrir 20 klukkutímum

Mikil áfengisneysla, með löngu millibili, getur haft áhrif á lifrina

Mikil áfengisneysla, með löngu millibili, getur haft áhrif á lifrina
Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Úkraínskur hermaður hakkaði sig inn á fund hjá rússneska hernum – „Ég drep ykkur alla“

Úkraínskur hermaður hakkaði sig inn á fund hjá rússneska hernum – „Ég drep ykkur alla“
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Börsungar vilja framherja Chelsea í sumar – Væri mikið áfall í London

Börsungar vilja framherja Chelsea í sumar – Væri mikið áfall í London
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Salah segir frá þætti Gerrard í það að hann sé að fara – „Ég man enn eftir þeim orðum“

Salah segir frá þætti Gerrard í það að hann sé að fara – „Ég man enn eftir þeim orðum“

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.