

Antonio Conte, stjóri Chelsea er sterklega orðaður við brottför frá félaginu þessa dagana.
Conte á 18 mánuði eftir af samningi sínum við Chelsea en enskir fjölmiðlar vilja meina að stjórinn gæti látið af störfum í sumar.
Chelsea situr sem stendur í fjórða sæti ensku úrvalsdeildarinnar með 50 stig, jafn mörg stig og Liverpool sem er í þriðja sætinu.
„Það er búið að skrifa mikið um framtíð mína alveg síðan að tímabilið hófst,“ sagði Conte á blaðamannafundi í dag.
„Það eina sem ég get sagt ykkur er að ég á 18 mánuði eftir af samningi mínum og markmið mitt er að klára þann samning.“
„Ég skrifaði undir þriggja ára samning ég ætla mér að vinna áfram hjá þessu félagi,“ sagði hann að lokum.