

Nathaniel Clyne, bakvörður Liverpool er í Meistaradeildarhópi félagsins sem tilkynntur var í dag.
Clyne hefur ekkert spilað fyrir Liverpool á þessari leiktíð en hann hefur verið að glíma við erfið bakmeiðsli.
Jurgen Klopp, stjóri liðsins greindi frá því í nóvember á síðasta ári að leikmaðurinn gæti verið orðinn leikfær í febrúar.
Félög mega bæta við þremur leikmönnum í Meistaradeildarhópi sína en þeir Virgil van Dijk og Danny Ings koma einnig inn í hópinn.