
Barack Obama, fyrrverandi Bandaríkjaforseti, var ekki par sáttur við ákvörðun bresku þjóðarinnar að segja sig úr Evrópusambandinu í forsetasíð hans árið 2016. Samkvæmt nýrri bók Kim Darroch lávarðar sem var sendiherra Bretlands þegar atkvæðagreiðslan átti sér stað notaði Obama sterkt blótsyrði.
Darroch var viðstaddur hádegisverð með háttsettum embættismönnum í Hvíta húsinu skömmu eftir að niðurstaðan lá fyrir, höfðu þeir allir miklar áhyggjur af Brexit. Spurði hann hvað Obama fyndist og svarið var afdráttarlaust.
„Obama finnst að þið hafið fokkað ykkur,“ sagði embættismaðurinn við hann. „Hann hélt áfram: Við skiljum ekki hvers vegna þið voruð að halda þjóðaratkvæðagreiðslu, sem þið þurftuð alls ekki að gera, nema vera alveg vissir um að fá rétta niðurstöðu. Þið eruð búnir að sprengja ykkur í loft upp.“
Obama vakti hörð viðbrögð í aðdraganda Brexitkosninganna með því að segja að Bretland færi aftast í röðina þegar kæmi að viðskiptasamningum við Bandaríkin ef Brexit yrði að veruleika.
Í bók Darroch, The Brexit Effect, má finna ýmsar lýsingar á viðbrögðum bandarískra embættismanna. „Ég sá fólk horfa á mig með hryllingssvip í augunum, það spurði mig: Hvað hafið þið gert?“