fbpx
Laugardagur 06.júní 2026
EyjanFastir pennar

Nína Richter skrifar: Ástarbréf til The Sims

Eyjan
Föstudaginn 5. júní 2026 06:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ég var 13 ára gömul 9. bekk. Staðurinn var kjallaraíbúð í Hraunbænum. Ég var stödd heima hjá vinkonu minni sem var nýbúin að fá tölvuleikinn The Sims. Þetta var ást við fyrstu sýn, ást sem hefur enst síðan. Í dag spila ég The Sims 4, hef keypt á fjórða tug viðbóta við leikinn á fjárhæðir sem ég kýs að tjá mig ekki um, og stæri mig af því að kunna að spila leikinn á háu erfiðleikastigi.

The Sims 4 leikurinn gengur út á að stjórna lífi sögupersóna að öllu leyti, allt frá því hvernig og hvenær þær vakna, hvað þær gera, við hvern þær tala, hvað þær segja, hvað þær borða, hvenær þær pissa, bursta tennur, fara í sturtu og mæta til vinnu. Persónur þurfa að mennta sig, sækja grunnskóla, framhaldsskóla, háskóla og láta til sín taka í atvinnulífinu. Þá þarf að finna sér maka og viðhalda hamingju í hjónabandinu. Þegar kemur að barneignum þarf að sinna börnunum almennilega, kenna þeim grundvallaratriðin og annars getur farið illa.

Ég er svo djúpt inni í The Sims að ég verð pirruð þegar fólk segir aulabrandara um að taka stigann úr sundlauginni eins og árið sé 2002. Þetta er miklu meira og flóknara en það. Þetta snýst ekki bara um að byggja hús. Þetta getur verið flókinn og taktískur leikur ef maður bara kann að spila hann, ef maður kann að flækja hlutina nógu mikið fyrir sér. Ég mun deyja á þeirri hæð.

Ég monta mig reglulega af því að mínir Simsar séu algjörlega sjálfbærir með orku og allan mat. Þeir eru með sólarrafhlöður á þakinu, sækja allan matinn sjálfir af sínu eigin landi, til að mynda rækta þeir sitt eigið grænmeti, rækta sojabaunir, bjöllur til vinnslu á bjölluhveiti, eiga litlar varphænur, lamadýr og dvergsauðfé til ullarvinnslu og geitur og kýr til mjólkurvinnslu. Úr þessu er svo unnið í höndunum; allt frá gervikjöti úr sveppum, tófú, garn og prjónavörur, ostar og allskonar niðurstöðuvörur og sultur. Svo að ég tali nú ekki um brauðið og baksturinn.

Það þarf að vera ábyrgur samfélagsþegn og gæta þess að neysla sé til fyrirmyndar, annars fær hverfið neikvætt kolefnisspor og þá fara allir að hósta og vera óhamingjusamir, veikir og sívælandi.

Í The Sims 4 fær enginn krabbamein, það er aldrei uppskerubrestur og engar hræðilegar heimsfréttir berast af þjóðarmorðum. Í raun gerist ekkert sem er ekki hægt að laga með peningum hér um bil samdægurs, ef maður á bara nógu mikið af þeim. Eða bíddu.

Kannski er það líka þannig í raunveruleikanum. Ég þarf eitthvað að skoða þetta.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

María Rut Kristinsdóttir skrifar: Krónukvíðinn

María Rut Kristinsdóttir skrifar: Krónukvíðinn
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Björn Jón skrifar: Störf sem Íslendingar „vilja ekki“

Björn Jón skrifar: Störf sem Íslendingar „vilja ekki“
EyjanFastir pennar
Fyrir 2 vikum

Nína Richter skrifar: Heimkomusorgin

Nína Richter skrifar: Heimkomusorgin
EyjanFastir pennar
Fyrir 2 vikum

Þorsteinn Pálsson skrifar: Sjö raundæmi um sjö raundæmi fyrrum forseta

Þorsteinn Pálsson skrifar: Sjö raundæmi um sjö raundæmi fyrrum forseta
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 vikum

Óttar Guðmundsson skrifar: Narsissisminn

Óttar Guðmundsson skrifar: Narsissisminn
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 vikum

Nína Richter skrifar: Ósexí rasistar

Nína Richter skrifar: Ósexí rasistar
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 vikum

Kolbrún Bergþórsdóttir skrifar: Val Viðreisnar

Kolbrún Bergþórsdóttir skrifar: Val Viðreisnar
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 vikum

Sigmundur Ernir skrifar: Góð spurning: Á Ísland að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið?

Sigmundur Ernir skrifar: Góð spurning: Á Ísland að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið?