

Marcus Rashford hefur svarað gagnrýni eftir að hafa vakið athygli með færslu á samfélagsmiðlum í kjölfar þess að hann var valinn í HM-hóp England.
Rashford, sem hefur átt gott tímabil á láni hjá FC Barcelona, þar sem hann skoraði 14 mörk og lagði upp önnur 14, þakkaði nokkrum þjálfurum og Barcelona og Aston Villa fyrir stuðninginn, en minntist ekki á Manchester United.
Það vakti mikla athygli og töldu margir að um skot á uppeldisfélagið væri að ræða. Rashford brást hins vegar við og útskýrði málið.
„Þetta er alls ekki skot á neinn. Ég er stuðningsmaður Manchester United og það mun aldrei breytast,“ skrifaði hann.
Hann sagði færsluna einfaldlega hafa verið þakklætisvott til þeirra sem hafa hjálpað honum síðustu 18 mánuði.
Óvíst er hvort Barcelona nýti kauprétt á leikmanninum, en framtíð hans er því enn óráðin.