

Liverpool vinnur nú að því að tryggja sér þjónustu hins efnilega Samuel Martinez frá Atletico Nacional.
Martinez er aðeins 17 ára gamall en hefur þegar vakið athygli stærstu félaga Evrópu. Borussia Dortmund, Bayern Munich og Chelsea fylgjast einnig með stöðu hans.
Samkvæmt enskum miðlum er enn ekki búið að ganga frá samningi, en viðræður eru í gangi um kaup upp á um 750 þúsund pund. Atletico Nacional vill jafnframt tryggja sér bónusgreiðslur og prósentu af framtíðarsölu.
Martinez er sókndjarfur miðjumaður sem getur leikið teiga á milli og er sagður spenntur fyrir möguleikanum á að færa sig til Englands.
Ef af félagaskiptunum verður er líklegt að hann fari á láni áður en hann fær tækifæri með aðalliði Liverpool.