

Real Madrid gæti staðið frammi fyrir miklum breytingum ef José Mourinho tekur við liðinu á nýjan leik.
Samkvæmt erlendum miðlum hefur Mourinho rætt við forseta félagsins, Florentino Pérez, og lagt fram skýrar kröfur um stjórn á leikmannamálum. Hann er sagður tilbúinn að leyfa allt að tíu leikmönnum að yfirgefa félagið.
Þar á meðal eru nöfn á borð við Eduardo Camavinga og Federico Valverde, auk þess sem varnarmenn og varamenn gætu einnig farið.
Stærsta sprengjan er þó að Vinícius Júnior gæti verið seldur. Óvissa ríkir um samningsstöðu hans og Real Madrid vill forðast að missa hann frítt.
Mourinho vill greinilega stokka upp hópinn og móta lið eftir sinni hugmyndafræði.
Óvíst er þó hvort allar þessar breytingar verði að veruleika, en ljóst er að róttækar ákvarðanir gætu verið fram undan hjá stórveldinu.