

Manchester United hefur hafið viðræður við Atalanta um kaup á miðjumanninum Ederson.
Samkvæmt heimildum er ekkert samkomulag enn í höfn, en viðræður eru í gangi og framgangur sagður vera jákvæður. United ætlar sér að styrkja miðjuna verulega í sumar og hefur sett sér það markmið að fá að minnsta kosti tvo nýja leikmenn í þá stöðu.
Ederson hefur verið sterklega orðaður við Atletico Madrid, en spænska félagið hefur beint sjónum sínum frekar að öðrum leikmönnum vegna fjárhagslegra þátta. Það hefur opnað dyrnar fyrir Manchester United og fleiri félög.
Brasilíumaðurinn hefur verið einn af lykilmönnum Atalanta og vakið athygli með öflugum leik á miðsvæðinu.
Sumarið gæti því orðið annasamt hjá Manchester United þar sem félagið leitast við að styrkja hópinn fyrir næsta tímabil.