fbpx
Föstudagur 22.maí 2026
433Sport

Auðunn Blöndal segir ótrúlega sögu frá New York – „Við fórum og létum þá vita að þú værir með þannig völd að þú gætir lokað þessum stað“

433
Föstudaginn 22. maí 2026 13:30

Auðunn Blöndal

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Auðunn Blöndal, sjónvarps og veitingamaður segir skemmtilega sögu af því þegar hann var staddur í New York ásamt unnustu sinni, Rakel Þormarsdóttir. Þar hittu þau Danny Welbeck framherja Brighton og enska landsliðsins.

Welbeck hefur leikið með Manchester United og Arsenal en Auðunn sjálfur er mikill stuðningsmaður United.

„Þetta er sönn saga, Danny Welbeck er á þessum stað í New York sem hún átti með manninum sínum. Hann situr í einhverju svaka loungei,“ segir Auðunn um unnustu sína Rakel sem rak skemmtistað í New York á árum áður.

„Ég kem og sest með Rakel og spyr hana hvort þetta sé ekki Welbeck, hún jánkar því. Ég spyr hvort ég megi ekki fara og spjalla við hann, hún segir já við því.“

Auðunn vildi fara og spjalla við Welbeck um árið 2014 þegar hann fór frá United til Arsenal. „Ég fer og sest hjá honum og segi ´Hi Danny, I´am a huge Man United fan, was it hard to leave United for Arsenal?. Hann er að fara að svara mér, þá koma vinir hans og segja mér að hann sé í fríi og að láta hann í friði.“

„Ég fer og sest á mitt borð og Rakel spyr hvort hann hafi ekki viljað tala við mig, ég segi henni að vinir hans hafi ekki viljað það.“

Þarna var ekki öllu lokið en Rakel sem eigandi staðarins lét til sín taka. „Það líður svona korter, þá kemur Welbeck og sest hjá mér með drykk. Hann biðst afsökunar á vini sínum og segir að þeir séu alltaf að passa hann of mikið. Við spjöllum í korter og svo fór hann.“

„Við fórum og létum þá vita að þú værir með þannig völd að þú gætir lokað þessum stað ef þú værir í þannig stuði og það væri því ekkert vitlaust að tala við þig.“

@epicbettvstory blö

♬ original sound – EPIC TV

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Íþróttavikan: Bjössi Þorfinns og Tommi Steindórs – Gleði í Grindavík og norðurhluta Lundúna

Íþróttavikan: Bjössi Þorfinns og Tommi Steindórs – Gleði í Grindavík og norðurhluta Lundúna
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Arteta efaðist á köflum um að hann væri rétti maðurinn í starfið

Arteta efaðist á köflum um að hann væri rétti maðurinn í starfið
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Arteta lýsir því hvernig hann komst að því að Arsenal væri meistari – „Hljóp út til mín grátandi“

Arteta lýsir því hvernig hann komst að því að Arsenal væri meistari – „Hljóp út til mín grátandi“
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Heimsfrægir menn gómaðir á leið út af nektardansstað snemma morguns – Sjáðu myndbandið

Heimsfrægir menn gómaðir á leið út af nektardansstað snemma morguns – Sjáðu myndbandið
433Sport
Í gær

Bayern skoðar óvæntan kost – Enskur landsliðsmaður sem getur komið frítt í sumar

Bayern skoðar óvæntan kost – Enskur landsliðsmaður sem getur komið frítt í sumar
433Sport
Í gær

Óvænt lið blandar sér í baráttuna um Mo Salah í sumar

Óvænt lið blandar sér í baráttuna um Mo Salah í sumar