

Manchester United er samkvæmt ítölskum miðlum bjartsýnt á að klára tvöföld miðjukaup í sumar.
Félagið vill fá bæði Ederson frá Atalanta og Sandro Tonali frá Newcastle áður en næsta tímabil hefst. Báðir leikmennirnir eru 26 ára gamlir og eru taldir efstir á óskalista United fyrir miðsvæðið.
Ederson hefur verið einn besti miðjumaður ítölsku deildarinnar með Atalanta undanfarin tímabil og hefur vakið mikla athygli fyrir kraftmikinn leik sinn og vinnusemi.
Tonali gekk til liðs við Newcastle frá AC Milan árið 2023 en hefur reglulega verið orðaður við endurkomu til ítalska boltans. Nú virðist Manchester United hins vegar tilbúið að gera alvöru atlögu að ítalska landsliðsmanninum.
Michael Carrick og stjórnendur félagsins vilja styrkja miðjuna verulega í sumar eftir að Casemiro tilkynnti brottför sína og Manuel Ugarte er einnig talinn líklegur til að fara.
United hefur þegar verið orðað við fleiri miðjumenn á borð við Mateus Fernandes hjá West Ham en Ederson og Tonali eru sagðir vera helstu markmiðin.