

Eiður Smári Guðjohnsen er goðsögn hjá Chelsea en félagið er að ganga frá ráðningu á Xabi Alonso sem stjóra liðsins. Þessi fyrrum leikmaður Liverpool fær traustið.
Alonso var rekinn frá Real Madrid á þessu tímabili eftir stutta dvöl þar, áður gerði hann vel hjá Bayer Leverkusen.
Eiður ræddi þessa ráðningu í Dr. Football hlaðvarpinu. „Skrýtið, mér fannst þetta svo borðleggjandi fyrir Liverpool. Ég hélt að fólkið í kringum Xabi Alonso væri að gera meira úr Chelsea áhuganum til að pota í Liverpool og segja að þeir væru að missa af honum ef þeir myndu ekki gera neitt,“ sagði Eiður í hlaðvarpinu vinsæla.

Nokkur rígur er á milli Liverpool og Chelsea og því er koma Alonso ekki alveg óumdeild.
„Mér finnst Xabi Alonso með sinn feril hjá Liverpool, passa miklu betur inn í það starf. Mér finnst það ekki hjá Chelsea, mér finnst þetta ekki jafn galið þegar Benitez tók við. Það var algjört rugl.“
Eiður segir starfið hjá Chelsea flókið þar sem hópurinn sé gríðarlega stór. „Sennilega það erfiðasta sem þjálfari er að hafa alltof stóran hóp, ert með karaktera sem sætta sig ekki við að vera í stúkunni. Þeir koma til þess að spila fyrir Chelsea, þetta bíður upp á vesen.“