fbpx
Þriðjudagur 19.maí 2026
Fókus

Logan Paul orðlaus eftir játningu frá umdeildum áhrifavaldi – Svona stækkar hann typpið

Fókus
Mánudaginn 18. maí 2026 19:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Braden Eric Peters, eða Clavicular eins og hann kallar sig á samfélagsmiðlum, er tvímælalaust einn umdeildasti áhrifavaldur dagsins í dag. Hann er talsmaður útlits, eða looksmaxxxing, og talar fyrir því að karlmenn þurfi að gera allt sem í þeirra valdi stendur til að bæta útlitið, jafnvel þó að slíkt kalli á öfgafullar og hættulegar aðferðir á borð við að brjóta í sér andlitsbein með hamri.

Clavicular heyrir til hóps áhrifavalda sem tilheyra svokölluðu karlahveli á netinu (e. manosphere), en um er að ræða samfélag sem virðist standa í þeirri trú að karlmennska sé ekki meðfædd heldur sé einhvers konar hlutverk sem karlar þurfa að leika til að sanna og staðfesta kyn sitt, einkum í samskiptum við konur.

Á dögunum mætti Clavicular í hlaðvarpið til glímukappans og YouTube-stjörnunnar Logans Paul, en sá síðarnefndi átti varla orð þegar Clavicular hóf að útskýra hvernig hann útlitshámarkar (e. looksmaxxxing) getnaðarlim sinn.

Clavicular útskýrði að áður hafi hann náð að bæta útlit kjálka síns með því að stunda hnitmiðað beinbrot með hamri (e. bone smashing). Nú hafi hann beint spjótunum að vini sínum fyrir sunnan, typpinu sínu, sem hann er að vinna í því að stækka. Áhrifavaldurinn er ekki að nota sérstakar pumpur sem eru ætlaðar í einmitt það verk – þess í stað hefur hann brugðið á það ráð að nota innkaupapoka og lóð.

„Geturðu útskýrt það nánar?“ spurði Logan Paul sem eðlilega átti erfitt með að ímynda sér hvað áhrifavaldurinn meinti og fékk Paul aðstoðarfólk sitt til að finna einn fjölnota innkaupapoka sem Clavicular gæti notað í sýnikennslu.

Clavicular útskýrði að hann setur lóðin ofan í innkaupapoka og vefur svo utan um liminn á sér til að teygja á honum.

„Þetta geri ég á meðan ég keyri,“ sagði Clavicular og Paul þurfti að viðurkenna að þetta væri einhvers konar metnaður hjá áhrifavaldinum.

Clavicular telur að þessar typpaæfingar hans hafi borið árangur og að eina neikvæða aukaverkunin sé að standpínan hans sé nú aðeins lægri en áður.

Eins viðurkenndi áhrifavaldurinn að hann noti sérstaka aðferð þegar hann daðrar við ókunnugar konur. Hann nálgast þær með standpínu.

Rétt er að geta þess að ekki er mælt með því að lyfta lóðum með getnaðarlimum, en slíkt getur valdið varanlegum afleiðingum á borð við tauga- og vefjaskemmdir, mar, blóðtappa og doða í kóngi. Loks er gott að muna að typpi eru brothætt og þeir sem hafa lent í broti mæla ekki með slíku.

Líklega er Clavicular þó alveg sama enda hefur hann sjálfur sagt að fengi hann að velja á milli þess að vera með hár eða typpi sem virkar, þá myndi hann frekar velja hárið. Hann væri því frekar til í að vera getulaus en sköllóttur.

Loks er best að minnast líka á það að læknar mæla almennt gegn því að fólk brjóti viljandi á sér andlitið fyrir útlitið.

News.com.au greinir frá. 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 5 dögum

Lestraráskorun fyrir börnin – Vegabréf fyrir lesturinn

Lestraráskorun fyrir börnin – Vegabréf fyrir lesturinn
Fókus
Fyrir 5 dögum

Kolbrún Bergþórsdóttir skrifar um sjónvarp: Hundrað ára eldhress heimsgersemi

Kolbrún Bergþórsdóttir skrifar um sjónvarp: Hundrað ára eldhress heimsgersemi
Fókus
Fyrir 1 viku

Þráir að komast í kuldann á Íslandi – „Ég hata hita“

Þráir að komast í kuldann á Íslandi – „Ég hata hita“
Fókus
Fyrir 1 viku

Lögreglan í Miami kærir stórleikarana fyrir meiðyrði vegna Netflix-myndar

Lögreglan í Miami kærir stórleikarana fyrir meiðyrði vegna Netflix-myndar