
Sigfríð Ingólfsdóttir féll frá þann 9. maí síðastliðinn, 73 ára gömul, og er hennar minnst í Morgunblaðinu.
Sigfríð var hvað þekktust fyrir að vera einn harðasti Arsenal-aðdáandi á Íslandi og bar heimili hennar sannarlega þess merki, en er varningur tengdur Arsenal út um allt.
Sigfríð hélt sérstaklega upp á Arsene Wenger og hét köttur hennar eftir franska knattspyrnustjóranum.
Sigfríð missti þá aldrei af leik og hélt sautján sinnum utan til að bera lið sitt augum. Hélt hún einnig upp á KA hér á landi.
Skemmtileg innslög hafa verið gerð um Sigfríði í gegnum tíðina á bæði RÚV og Sýn (áður Stöð 2) eins og má sjá með því að smella á hlekkina.