
ÍTF og Sýn hafa framlengt samning á sýningarétti á Bestu deildinni um eitt ár.
Núgildandi samningur átti að renna út eftir þessa leiktíð en nú er ljóst að Bestu deildir karla og kvenna verða á Sýn á næsta ári einnig.
Þó þessi samningur sé til eins árs munu viðræður um langtímasamning halda áfram.