

Söngvarinn dáði Rod Stewart hrósaði Karli III Bretlandskonungi eftir heimsóknina til Bandaríkjanna. Það er vegna þess að Karl hafi látið Donald Trump Bandaríkjaforseta heyra það.
„Ég verð að segja vel gert hjá þér í Ameríku. Þú varst frábær, algjjörlega frábær. Þú sagðir þessum rottuhala til syndanna,“ sagði Rod Stewart, eða réttara sagt Sir Rod Stewart, þegar hann hitti Karl III Bretlandskonung í Royal Albert Hall. En þar var verið að halda upp á 50 ára afmæli King´s Trust, góðgerðarsamtaka sem Karl stofnaði árið 1976 fyrir ungt fólk í vanda.
Var Stewart að vísa til nýlegrar opinberrar heimsóknar Karls til Bandaríkjanna í lok apríl þar sem hinn fyrrnefndi skaut föstum skotum á hinn síðarnefnda.
Í ávarpi á Bandaríkjaþingi hvatti Karl Bandaríkin til að standa þétt með bandamönnum sínum, en eins og flestir vita þá hefur Trump eytt mun meira púðri í að rakka bandamennina niður en sögulega andstæðinga. Fjallaði Karl um mikilvægi NATO, þörfina fyrir að takmarka völd forseta, loftslagsbreytingar og stuðning við vörn Úkraínumanna gegn Rússum, allt saman efni sem Trump hefur sviðið að heyra konunginn tala um.