

Það var rætt um framtíð Jökuls Elísabetarsonar í þjálfarastólnum hjá Stjörnunni í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X-inu á laugardag og var Halldór Árnason nefndur á nafn yfir hugsanlega arftaka hans.
Stjarnan hefur tapað fjórum leikjum í röð og er aðeins með sex stig eftir sex leiki í Bestu deild karla. Miklar væntingar voru gerðar til liðsins fyrir tímabilið og því velta menn framtíð Jökuls fyrir sér.
„Það er nýlegur Íslandsmeistari sem vinnur hér á Suðurlandsbraut og þekkir til hjá Stjörnunni. Það er auðvitað Halldór Árnason,“ sagði Tómas Þór Þórðarson í þættinum, en Halldór er sérfræðingur Sýnar um Bestu deildina sem stendur.
„Á meðan hann vappar hér um göturnar er enginn óhultur,“ sagði Tómas enn fremur, léttur í bragði.