fbpx
Mánudagur 11.maí 2026
Fókus

„Hvað borgar almenningur fyrir það að Steinunn Ólína fari í starfshæfismat?“

Fókus
Mánudaginn 11. maí 2026 10:12

Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir. Skjáskot/Youtube

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir leikkona segir frá því að hún hafi nú gengist undir starfshæfismat sem Þjóðleikhúsið sendi hana í. Segir hún ljóst að matið sé tilgangslaust og veltir fyrir sér hvað þessi opinbera stofnun hafi greitt fyrir matið.

Steinunn Ólína er fastráðin hjá Þjóðleikhúsinu og hefur nú snúið aftur úr veikindaleyfi. Greindi hún frá því fyrir helgi að Þjóðleikhúsið hefði farið fram á að hún undirgengist starfshæfismat og velti fyrir sér hvort þetta væri liður í tilraun leikhússins til að losna við hana úr starfi.

Veltir fyrir sér hvort Þjóðleikhúsið sé að reyna að losna við hana – „Ekki er öll vitleysan eins!“

Steinunn Ólína skrifar í nýjum Facebook-pistli  hún hafi í kjölfarið fengið ótal ábendingar opinberra starfsmanna um ólögmæti þessa mats sem Þjóðleikhússtjóri skipaði henni að fara í. Hún veltir fyrir sér kostnaðinum:

„Hvað borgar almenningur á Íslandi fyrir það að Steinunn Ólína fari í starfshæfismat? Þessu getur vitanlega Þjóðleikhúsið svarað! Og grínfyrirtækið Auðnast er vitanlega með gjaldskrá fyrir slíkt! Ég er ekki löglærð en sögur annarra sem hafa skrifað mér af málum sínum ekki ósvipuðum eru vitanlega vísbending um afskaplega kostnaðarsamt jafnvel ólöglegt stjórnsýslurugl hins opinbera.“

Auðnast mun vera fyrirtæki sem tekur slíkt mat að sér.

Grín

Steinunn Ólína fór síðan í matið síðasta föstudag og segir það hafa verið meira en fróðlegt:
„Ég tók það viðtal upp með leyfi læknisins vitanlega, enda kostulegt með endemum. Þetta er stand-up material og bíður betri tíma! Þar mætti mér hámennntaður sérgreinalæknir yngri en ég, sem ég hef aldrei áður hitt, elskulegasti maður og ég varð strax leið yfir því að svo hæfur langskólagenginn einstaklingur væri að vinna jafn tilgangslaust starf á kostnað almennings. Og í jafn tilgangslausu og almennings fjàrsjúgandi fyrirtæki eins og nefnt Auðnast!“

Telur Steinunn Ólína ljóst að tíma læknisins sem hún hitti hefði verið betur varið í önnur verkefni:

„Hvað er almenningur búinn að borga Auðnast fyrir tilgangsleysið? Þetta eru okkar peningar! Það vantar sérgreinalækna á LSH!!! En læknar sem velja þægilega innivinnu á blússandi launum til að sitja á skrifstofu frekar en að bjarga mannslífum, eiga kannski bara ekki að vinna við lækningar heldur uppbulluð skrifstofustörf? Ég spyr því: Ríkisstofnanir eins og í mínu tilfelli vinnustaður minn Þjóðleikhúsið borga fyrir starfshæfismat á starfsfólki sínu hjá einkafyrirtækinu Auðnast. Hvað borgar almenningur fyrir það að Steinunn Ólína fari í starfshæfismat? Þessu getur vitanlega Þjóðleikhúsið svarað! Og Auðnast er vitanlega með gjaldskrá fyrir slíkt!“

Merkir (taggar) Steinunn Ólína nokkra leikara sem starfa í Þjóðleikhúsinu í færslunni sem og Magnús Geir Þórðarson Þjóðleikhússtjóra. Hvort færslan mun draga einhvern dilk á eftir sér eða hafa einhver önnur áhrif á framtíð Steinunnar Ólínu í Þjóðleikhúsinu á væntanlega eftir að koma í ljós.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 4 dögum

Bonnie Tyler gekkst undir bráðaaðgerð

Bonnie Tyler gekkst undir bráðaaðgerð
Fókus
Fyrir 4 dögum

Ótrúleg breyting – Leit út eins og moldvörpurotta en er núna hið mesta kvennagull

Ótrúleg breyting – Leit út eins og moldvörpurotta en er núna hið mesta kvennagull
Fókus
Fyrir 5 dögum

„Áhyggjufullur og með uppköst í viku“ fyrir viðtal hjónanna við Oprah

„Áhyggjufullur og með uppköst í viku“ fyrir viðtal hjónanna við Oprah
Fókus
Fyrir 5 dögum

„Það fylgir þessu mikil skömm og ég faldi þetta fyrir konunni minni“

„Það fylgir þessu mikil skömm og ég faldi þetta fyrir konunni minni“
Fókus
Fyrir 1 viku

Segir börn sín ekki fá Hollywood á silfurfati: Þurfa að „vinna sér það inn“

Segir börn sín ekki fá Hollywood á silfurfati: Þurfa að „vinna sér það inn“
Fókus
Fyrir 1 viku

Regína Ósk og Svenni ljóstra upp nýjasta afrekinu

Regína Ósk og Svenni ljóstra upp nýjasta afrekinu